Frost

Frost

Heillandi leikhústöfrar!
SVIÐ
Stóra Sviðið
FRUMSÝNING
2.3.2024
LENGD
2.20 eitt hlé
VERÐ
9.950

Ævintýrið sem allir elska heldur áfram

Söngleikurinn Frost heillaði unga sem aldna upp úr skónum á síðasta leikári og ævintýrið heldur nú áfram á Stóra sviðinu af fullum krafti! Spennandi, fyndin og falleg saga, leikhústöfrar og mögnuð tónlist! Frost hlaut fjórar tilnefningar til Grímunnar, m.a. sem barnasýning ársins, og var tilnefnd sem sýning ársins á Sögum, verðlaunahátíð barnanna.

Söngleikurinn er byggður á hinni ástsælu Disneyteiknimynd Frozen og hefur notið mikilla vinsælda á Broadway, West End í London og víðar. Þetta hrífandi ævintýri birtist okkur hér í nýrri uppfærslu Gísla Arnar, þar sem einstakt vald hans á töfrum leikhússins nýtur sín til fulls. Sagan er innblásin af Snædrottningunni eftir sagnameistarann H.C. Andersen, og á þannig uppruna sinn á Norðurlöndum, en Gísli Örn setur sýninguna upp víða um Norðurlönd. Stórbrotin tónlistaratriði og bráðskemmtilegar persónur í nýjum söngleik þar sem þekkt og vinsæl lög hljóma í bland við fjölmörg ný lög sem eru samin sérstaklega fyrir söngleikinn.

 

MYNDBÖND

Stikla

Sannkallaðir leikhústöfrar

Söngleikur byggður á Disneykvikmyndinni Frozen eftir Jennifer Lee í leikstjórn Chris Buck og Jennifer Lee. Frumuppfærslan á Broadway, í leikstjórn Michael Grandage, var framleidd af Disney Theatrical Productions.

Í samstarfi við Vesturport, Det Norske Teatret í Osló, Borgarleikhúsið í Stokkhólmi, Borgarleikhúsið í Helsinki og fleiri leikhús á Norðurlöndum. Sýnt með leyfi Disney Theatrical Productions.

Aldursviðmið: 4 ára +

Leikarar

Börnin í sýningunni

Hljómsveit

Höfundar og listrænir stjórnendur

Tónlist og söngtextar
Handrit
Leikmynd
Tónlistarstjórn
Búningar
Dans og sviðshreyfingar
Myndbandshönnun

Í sýningunni eru blikkandi ljós. Snjórinn í sýningunni er skaðlaus. Sjá nánar hér.

Leikhópurinn fer með ýmis hlutverk í sýningunni. Leikarar úr leikhópi Þjóðleikhússins eru staðgenglar leikara. Viktoría Sigurðardóttir er staðgengill fyrir hlutverk Elsu og Önnu. 

Viðbótarhljóðupptökur önnuðust Andri Ólafsson, Birgir Þórisson og Þóroddur Ingvarsson. Sérstakar þakkir: Kjartan Guðnason.

Aðrir aðstandendur

Keyrslusýningarstjórn
Aðstoðarmaður leikstjóra
Aðstoðarmaður danshöfundar
Dansstjóri barna
Aðstoðarmaður tónlistarstjóra, nemi við LHÍ
Aðstoðarmaður búningahöfundar
Samfélagsmiðlateymi sýningar
Aðstoð við töfrabrögð
Ljósaforritun
Ljósadeild, umsjón með sól/mána
Hljóðmaður á sviði
Brúðugerð – Ólafur
Snjókarlabúningar
Teymisstjórn leikmyndaframleiðslu
Smíði og skúlptúr
Málmsmíði
Leikmunir, yfirumsjón
Aðstoð við leikmunagerð
Leiksviðsstjóri
Leiksviðsdeild, yfirumsjón sýningar
Ég er frjáls

Máninn sindrar á snjóbreiðunni,
hér er hvergi hræðu að sjá.
Ég er drottning í þessu ríki
— eða þannig lít ég á.

Hvínandi vindurinn um hugarfylgsni fer.
Hvirfilbylurinn ólgar inni í mér.
Þú hylur hvað sem amar að,
góða stelpan hún ætti' að vita það.
Hyldu, dyldu að ystu brún
— loks brestur hún.

Ég er frjáls, orðin frjáls,
hleyp öllum sorgum frá.
Ég er frjáls, orðin frjáls
ég er full af nýrri þrá.
Næturfrost mega minna á sig,
mæti storminum
— kuldinn er ekkert að angra mig.

Merkilegt hvað fjarlægð lætur fjöllin virðast blá.
Nú áhyggjur og ótti mér engan veginn há.
Við sjáum til hvað ég get gert,
ég færi mörkin umtalsvert.
Því þessi tilfinning er hrein
— loks ein.

Ég er frjáls, orðin frjáls.
Ég hverf inn í hvítan heim.
Ég er frjáls, alveg frjáls.
Er hætt að þóknast þeim.
Ég verð hér, ég stend með mér
— mæti storminum.

Ég beisla kraftana sem ólmast allt um kring.
Frá innstu hjartarótum, mikilfengleg kraftbirting.
Fjúkandi hugsanirnar finna loksins svar.
Ég sný mér aldrei við, því fortíðin er þar.


Ég er frjáls, alveg frjáls.
Eins og sólin um himinn fer.
Ég er frjáls, alveg frjáls.
Er frjáls frá sjálfri mér
Allt er hægt ef þú treystir á þig,
mæti storminum
— kuldinn er ekkert að angra mig.


Þýðing: Bragi Valdimar Skúlason

/
Varningur og veitingar
Ískrap
Ískalt og svalandi
1.500 kr.
Leikskrá
Stór og efnismikil leikskrá með allskonar skemmtilegu efni
2.500 kr.
Vöfflur
Hvers vegna ekki að panta fyrirfram og ganga að gómsætum vöfflum á fráteknu borði í hléi
900 kr.
Kaffi
Rjúkandi bolli með vöfflunum – að sjálfsögðu
400 kr
Kaffisúkkulaði
Það smellpassar með sýningunni
400 kr.
Trítlar
Fyrir trítlana og fullorðna fólkið fær að stelast smá
400 kr
Safi
Klikkar aldrei!
350 kr.
Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími