Leikritahátíð Þjóðleikhússins haldin í þriðja sinn
Eftir tvær geysivelheppnaðar hátíðir verður Guli dregillin á sínum stað á þessu leikári
Ný leikritahátíð Þjóðleikhússins, Guli dregillinn, hefur fest sig í sessi. Í þriðja sinn kynnum við þrjú glæný og spennandi íslensk leikrit. Markmið hátíðarinnar er að auka stuðning hússins við íslenska leikritun enn frekar og veita fleiri höfundum rými og aðstöðu til að skrifa leikverk í skapandi samtali við Þjóðleikhúsið. Ekki síst býður Guli dregillinn áhorfendum að kynnast nýjum íslenskum leikritum sem gætu átt sér framhaldslíf ýmist innan eða utan veggja Þjóðleikhússins.
Handritin lifna við í formi æfðs leiklestrar, við ræðum við höfundana um verkin og fögnum síðan saman í lok hátíðar. Verið með okkur á næsta Gula dregli og kynnist því nýjasta og ferskasta í íslenskri leikritun!
Höfundar Gula dregilsins 2026-27:
Brynja Hjálmsdóttir hefur komið víða við á ritvellinum, gefið út tvær ljóðabækur, skáldsöguna Friðsemd og er höfundur leikritsins Ókyrrð sem kom út hjá Unu útgáfuhúsi árið 2022. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir verk sín, en þetta er í fyrsta sinn sem leikrit eftir hana verður flutt á fjölum Þjóðleikhússins. Í verkum Brynju ólgar gáskafullur og hrífandi kraftur sem kemst nú í snertingu við leikhúsgesti í fyrsta sinn.
Sigurður Ámundason er myndlistarmaður sem hefur á undanförnum árum borið með sér ferska vinda inn í íslenskt sviðslistalíf með leikritunum Hið ósagða og Rómantísk gamanmynd, en bæði þessi verk hlutu tilnefningar til Grímunnar sem leikrit ársins. Einstök og frumleg nálgun Sigurðar, sem stígur inn í leikhúsið á forsendum gjörninga- og kvikmyndalistarinnar, hefur hrifið leikhúsáhugafólk með ferskleika sínum og fyndni, en ekki síður dýpt og mannskilningi.
Ragnar Ísleifur Bragason er löngu orðinn íslenskum leikhúsgestum kunnur sem meðlimur leikhópanna Kriðpleir og 16 elskendur. Ragnar er þekktur fyrir einstakan húmor, meinfyndna sýn á hversdagsleikann og sjarmerandi sviðsframkomu. Ragnar starfaði sem leikskáld Borgarleikhússins á árunum 2024-26, en þetta er í fyrsta sinn sem hann sest í höfundastól í Þjóðleikhúsinu og skrifar verk fyrir leikhóp hússins.
Hátíðin verður haldin í apríl 2027.
Fyrri höfundar Gula dregilsins
2024-2025
Friðgeir Einarsson, Nýtt eldhús eftir máli
Hildur Selma Sigbertsdóttir, Kronplatz
Kolfinna Nikulásdóttir, Töfrapilsið
2025-2026
Hallveig Kristín Eiríksdóttir og Eygló Höskuldsdóttir Viborg, Hættuspilið
Mazen Maarouf, Jarðarberjadraumar
Melkorka Gunborg Briansdóttir, Partý dauðans
Vilt þú vera með á næsta Gula dregli?
Auglýst er eftir höfundum og verkum undir lok leikárs.
Höfundar og skáld sem skrifa fyrir sviðið eru hvött til að láta í sér heyra. Þjóðleikhúsið stendur á hverju leikári fyrir frumsköpun, þróun á nýjum íslenskum leikverkum og stuðningi við höfunda.
Vinnustofa höfunda
Við bjóðum völdum höfundum sem eru að þróa spennandi verk vinnuaðstöðu í Þjóðleikhúsinu. Höfundar fá aðstöðu í Þjóðleikhúsinu í einn eða tvo mánuði í senn og býðst að eiga samtal við dramatúrga og annað listafólk hússins.
Kraftmikið höfundastarf í Þjóðleikhúsinu
Þjóðleikhúsið leggur áherslu á frumsköpun, ný íslensk verk og stuðning við höfunda á ólíkum aldri og með ólíkan bakgrunn. Við tökum handrit og hugmyndir að leikritum á ólíkum vinnslustigum til skoðunar og köllum reglulega eftir höfundum, leikritum og listrænu samverkafólki.
Athugið. Umsóknarfresti lauk 4. maí, 2026.
Heyrðu í okkur
Auk umsóknarinnar býðst höfundum ætíð að senda leikhúsinu handrit eða hugmyndir að leikritum í gegnum netfangið leikritun@leikhusid.is.