Við tökum vel á móti þér í miðasölu leikhússins
Miðasala leikhússins á netinu er alltaf opin. Miðasala í leikhúsinu er opin virka daga kl. 14-18, um helgar kl. 12-18 og fram að sýningu sýningardaga.
Við svörum í símann alla virka daga frá klukkan 12:30 – 18:00 og á sýningardögum fram að sýningu. Hægt er að kaupa staka miða og gjafakort hér á vefnum.
Kaupa gjafakortSpjallþjónusta á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opin alla virka daga frá 12:30-18 og um helgar frá 12:00 fram að sýningu.
Það er sáraeinfalt að kaupa miða á vefnum.
Kaupa miða
Veitingasala Þjóðleikhússins
Veitingar er hægt að panta fyrirfram og handhægt að gera það í sömu andrá og miðar eða leikhúskort eru keypt. Ef pantað er í gegnum miðasölu verður að gera það með a.m.k. 12 klukkustunda fyrirvara.
Veitingar fyrir hópa
Hópurinn þinn getur borið fram sérstakar óskir um veitingar. Sendu okkur línu á midasala@leikhusid.is og við sníðum veitingar fyrir hópinn að þínum óskum.
SJÁ MATSEÐIL
Gjafakort Þjóðleikhússins.
Þrjár gjafir í einni!
Tilhlökkun, upplifun og ógleymanlegar minningar
Þjóðleikhúsið býður upp á spennandi tilboð á gjafakortum. Nú getur þú fært þeim sem þér þykir vænt um þrjár gjafir í einni. Tilhlökkun, upplifun og ógleymanlegar minningar.
Sjá nánar
Leikhúskortið veitir þér alls konar fríðindi
Það margborgar sig að vera með kort!
- Þitt sæti á sýningarnar sem þig langar mest að sjá
- Gjafakort á sérkjörum þegar þú vilt gleðja aðra
- Afsláttur af bókum í leikhúsbókabúðinni okkar
- Sérstök tilboð send út af og til
- SMS áminningar um sýningardaga
- Ef sýningardagsetning hentar ekki þá aðstoðum við þig við að finna nýja dagsetningu.
Aðgengi og bílastæði
Bílastæði í nágrenni Þjóðleikhússins eru m.a. við vesturenda aðalbyggingarinnar, við Lindargötu og Sölvhólsgötu. Gjaldfrjálst er í þau stæði eftir kl 18. Stórt bílastæði ráðuneyta á milli Lindargötu og Sölvhólsgötu er opið almenningi á kvöldin og um helgar. Bílastæðahúsin Traðarkot við Hverfisgötu 20, gegnt Þjóðleikhúsinu, og Kolaportið undir Seðlabankanum eru opin til kl. 24:00 alla daga. Bílahús Hörpu er opið allan sólarhringinn.
Aðgengi
Textun og tónmöskvar
Tónmöskvar eru í Stóra salnum fyrir heyrnarskerta. Nánari upplýsingar um tónmöskva má fá í miðasölu. Tónmöskvar eru afhendir í veitingasölunni.
Textun á ensku og íslensku á 7. sýningu verka á Stóra sviðinu.
TextunTáknmálsaðgengi. Í samstarfi við Ástbjörgu Rut Jónsdóttur og Hraðar hendur táknmálstúlka býður leikhúsið upp á táknmálsaðgengi að ákveðnum leiksýningum, sem auglýstar eru sérstaklega.
- Almennt miðaverð á sýningar Þjóðleikhússins er 7.950 kr.
- Frumsýningar: 10.900-15.900 kr.
- Barnasýningar á Stóra sviðinu: 7.500 kr.
- Barnasýningar á litlu sviðunum: 5.500 kr.
- Söngleikir: 10.900 kr.
- Kjallarinn: 3.500-7.000 kr.
- Forsýningar: 4.500 – 5.500kr.
Heimilt er að sitja undir börnum yngri en 2ja ára á sýningum á Stóra sviðinu. Á minni sviðum er slíkt ekki heimilt.
Afsláttur af miðaverði fyrir aldraða og öryrkja er 10%.
Stæði fyrir hjólastóla eru gjaldfrjáls, en panta þarf stæði fyrir fram.
Miðasala veitir upplýsingar um afslátt fyrir hópa.
Kortagestir fá send sms-skilaboð til áminningar um sýningardag tveimur til þremur dögum fyrir sýningu.
Leikhúskort sem keypt er að hausti gildir það leikár, en rennur út í lok leikársins, að vori.
Kortagestir fá að auki 10% afslátt af almennu miðaverði.
Vinsamlega athugið að þegar leikhúskort eru keypt að hausti eru sýningardagar áætlaðir, en þeir geta breyst þegar nær dregur. Kortagestir eru því hvattir til að fylgjast með sýningum á vef leikhússins, leikhusid.is. Þar má finna réttar dagsetningar út frá sýningarnúmeri.
Farið yfir miðakaup
Vinsamlega farið vel yfir miðakaupin þegar þau eiga sér stað, dagsetningu, sætanúmer, tímasetningu og leiksvið. Það kemur fyrir að ekki er hægt að leiðrétta miðakaup eftir á.
Breytingagjald
Breytingagjald fyrir hvern miða er 500kr. á öllum sýningum. Kortagestir hafa möguleika á að breyta kortasýningu einu sinni án endurgjalds.
Lokafrestur afpöntunar
Miði telst notaður hafi ekki verið afpantað eða breytt í síðasta lagi 48 tímum fyrir sýningu.
Endursala miða er óheimil
Ekki er heimilt að endurselja öðrum miða með fjárhagslegum hagnaði. Ef miði er seldur með fjárhagslegum hagnaði fyrir annan aðila en aðstandanda viðburðar, þá áskilur Þjóðleikhúsið sér rétt til að ógilda miðann.
Viðburður fellur niður
Ef viðburður fellur niður þá eru eigendum miða boðnir sambærilegir miðar á nýja dagsetningu eða full endurgreiðsla á miða.
Dagsetningu viðburðar breytt
Ef dagsetningu viðburðar er breytt, þá færast miðarnir sjálfkrafa á nýja dagsetningu. Ef ný dagsetning hentar ekki á kaupandi rétt á endurgreiðslu.
Endurgreiðsla vegna miðakaupa
Þegar þú hefur keypt miða/vörur hjá Þjóðleikhúsinu, í gegnum vefinn eða síma, hefur þú 14 daga frá miða eða vörukaupum til þess að falla frá kaupunum og óska eftir endurgreiðslu á miðum eða vörum. Þetta á hins vegar ekki við um beiðnir sem berast þegar minna en 14 dagar eru í viðburð. Miðar greiddir með gjafakortum fást ekki endurgreiddir.
Gjafakort
Almenn gjafakort Þjóðleikhússins renna ekki út, en ef miðaverð hefur hækkað milli leikára eða gjafakort er notað á sýningu með hækkuðu miðaverði, þarf að greiða mismun. Gjafakort er ekki hægt að fá endurgreidd. Miðar sem greiddir hafa verið með gjafakortum fást ekki endurgreiddir.
Sum gjafakort hafa hinsvegar ákveðinn gildistíma, en þá er það tekið fram á gjafakortunum.
Gjafakort gilda ekki á samstarfsverkefni eða gestaleiki í Leikhúskjallara.
Glatað gjafakort
Týnt gjafakort er tapað fé, en í einstaka tilfellum er hægt að rekja gjafakort í miðasölu.
Sendingargjald
Sendingargjald er 695 kr. fyrir heimsend gjafakort.
Fráteknir miðar
Miðar eru fráteknir í 7 daga – eftir það dettur frátektin út.
Áminning
Þjóðleikhúsið ábyrgist ekki sms og tölvupóst áminningar um sýningar. Það er á ábyrgð eiganda aðgöngumiða að halda utan um sýningardag og tíma. Við hvetjum kortahafa til að ganga úr skugga um að tenglaupplýsingar þeirra séu rétt skráðar hjá miðasölu. Ef upplýsingar eru ekki réttar getum við ekki ábyrgst að skilaboð tengd sýningum komist til miðahafa.
Leikhúskort
Í áskriftarkortum er ekki hægt að breyta um valin leikverk enda um föst sæti á föstum sýninganúmerum að ræða. Breytingar á þessum kortum geta valdið því að áskrift fellur niður að ári.
Leikhúskort sem keypt er að hausti gildir það leikár, en rennur út í lok leikársins, að vori.
Vinsamlega athugið að þegar leikhúskort eru keypt að hausti eru sýningardagar áætlaðir, en þeir geta breyst þegar nær dregur. Kortagestir eru því hvattir til að fylgjast með sýningum á vef leikhússins, leikhusid.is. Þar má finna réttar dagsetningar út frá sýningarnúmeri.
Aldurstakmark
Aldurstakmark á viðburði ræðst eftir útivistartíma barnaverndarlaga og lögum um vínveitingahús. Börnum yngri en 18 ára er óheimilt að dvelja inni á veitingastað, sem leyfi hefur til áfengisveitinga eftir kl. 20.00 á kvöldin og fram til lokunar staðarins, nema í fylgd með forsjáraðila. Viðburðarhaldari getur þó sett sínar eigin reglur varðandi aldurstakmörk og gilda þær þá fram yfir þær reglur sem settar eru í skilmálum Þjóðleikhússins.
Takmarkaður miðafjöldi
Á suma viðburði er miðafjöldi takmarkaður við miðakaup, ef fleiri miðar eru keyptir á sama nafn, kennitölu, netfang eða kreditkort, þá áskilur Þjóðleikhúsið sér rétt til þess að ógilda alla miða sem keyptir eru umfram þann fjölda sem tiltekinn er.
Ábyrgð
Allir viðburðir sem í sölu eru hjá Tix miðasölu eru ábyrgð aðstandenda viðburðar, ekki Tix miðasölu.
Tix miðasala og aðstandendur viðburða bera enga ábyrgð á persónulegum munum miðaeigenda fyrir, á meðan, eða eftir að viðburði lýkur.
Viðvaranir
Í leikhúsi er fjallað um ólíka kima tilveru okkar, og sú umfjöllun getur orðið ágeng.
Sjá nánar viðvaranir og ábendingar hér:
Viðvaranir
- Salur
- Svalir
-
- Salur
- Svalir
-
- Salur
- Svalir
-
- Salur
- Svalir
-
Leikhúsbókabúðin
Í leikhúsbókabúð Þjóðleikhússins eru á boðstólum leikhúsbækur af öllu tagi á kostakjörum, þar má finna leikrit og leikritasöfn, bækur um leikhús og leikhúsfólk, fræðirit um fagið og skáldverk sem tengjast leiksýningum Þjóðleikhússins. Þar er einnig boðið upp á eigin útgáfu leikhússins á völdum nýjum leikritum og þýðingum.
SKOÐA BÓKABÚÐ