Salka – ástin og dauðinn
Salka hrífur alla
Einleikur Unnar Aspar vakti djúpstæða hrifningu áhorfenda og gagnrýnenda á síðasta leikári og var tilnefndur til þrennra Grímuverðlauna.
Salka Valka er ein eftirminnilegasta persóna Halldórs Laxness. Í sýningunni þræðir Unnur Ösp sig í gegnum sögu hennar, umvafin tónlist úr plötusafni Halldórs Laxness sem var skáldinu innblástur við skrif bókarinnar.
Sýningin er samstarfsverkefni Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi og Þjóðleikhússins í tilefni af tuttugu ára afmæli setursins árið 2026. Einleikurinn, sem sýndur er á Söguloftinu, er byggður á fyrri hluta skáldsögu Halldórs Laxness, Sölku Völku, Þú vínviður hreini.
„…en tvær sálir geta verið svo fjarlægar hvor annarri jafnvel þó þær hafi einusinni búið í sama líkama.“
Í rauninni væri einfaldast að segja að þessi flutningur sé kraftaverk, svo einstakur er hann í innlifun leikkonunnar, einlægni hennar og djúpum skilningi á verkinu og persónum þess. Við sölkurnar hneigjum okkur djúpt og þökkum innilega fyrir okkur.
TMM.forlagid.is
„Hvernig skyldu menn lifa á svona stað? Og hvernig skyldu menn deyja?“
Stofnendur Landnámssetursins, þau Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, settu meðal annars upp geysivinsæla sýningu á Sjálfstæðu fólki Halldórs Laxness í Þjóðleikhúsinu árið 1999, og tengsl Þjóðleikhússins við setrið hafa verið sterk í gegnum tíðina.
Uppsetning Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi í samstarfi við Þjóðleikhúsið.

Leikari
Höfundar
Listrænir stjórnendur
Aðrir aðstandendur sýningarinnar