
Þjóðleikhúsið er lifandi og kraftmikið leikhús sem á brýnt erindi við fólkið í landinu
Þjóðleikhúsið er lifandi og kraftmikið leikhús sem á brýnt erindi við fólkið í landinu. Í Þjóðleikhúsinu eru settar á svið framúrskarandi leiksýningar sem skemmta áhorfendum, ögra þeim, vekja þá til umhugsunar og veita þeim innblástur. Þjóðleikhúsið sýnir fjölbreytt úrval sviðsverka sem er ætlað að höfða til ólíkra áhorfendahópa, með það að markmiði að efla og glæða áhuga landsmanna á list leikhússins og auðga leikhúsmenningu í landinu.

Nýsköpun, klassík og kassastykki
Á verkefnaskránni eru að jafnaði ný og eldri innlend og erlend verk, klassískar leikbókmenntir, söngleikir og barnasýningar, sem og sýningar af ýmsu tagi unnar í samstarfi við leikhópa, danslistafólk og listastofnanir. Sérstök rækt er lögð við innlenda nýsköpun og ný íslensk leikverk.
Þjóðleikhúsið leggur einnig ríka áherslu á að efla áhuga og skilning yngri kynslóða á leikhúsinu með sýningum fyrir börn og unglinga og fræðslustarfi. Leikið er á fimm ólíkum leiksviðum í leikhúsinu, en Þjóðleikhúsið sýnir einnig sýningar á leikferðum um landið.

Eflum áhuga allra landsmanna á leikhúsinu
Í Þjóðleikhúsinu eru settar á svið framúrskarandi leiksýningar sem skemmta áhorfendum, ögra þeim, vekja þá til umhugsunar og veita þeim innblástur. Þjóðleikhúsið sýnir fjölbreytt úrval sviðsverka sem er ætlað að höfða til ólíkra áhorfendahópa, með það að markmiði að efla og glæða áhuga landsmanna á listleikhússins og auðga leikhúsmenningu í landinu.
Á hverju ári eru um 30 ólíkar sýningar á fjölum leikhússins. Þar afer um tugur nýrra frumsýninga, en að auki sýnir leikhúsið verk frá fyrra leikári ásamt samstarfs- og gestasýningum.

Metnaður á öllum stigum framleiðslu
Fastráðið starfsfólk leikhússins er um 100 manns, en einnig starfa tæplega 200 lausráðnir starfsmenn við leikhúsið á ári hverju. Eru þá ótaldir starfsmenn gesta- og samstarfsverkefna. Í Þjóðleikhúsinu starfar metnaðarfullt sviðslistafólk í fremstu röð ogþar er lögð alúð við að efla innra starf og starfsánægju, með áherslu á jafnréttismál.
Þjóðleikhúsið er eign íslensku þjóðarinnar og um starfsemi þesser fjallað í lögum nr. 165/2019 um sviðslistir.

Nýtt upphaf
Við í Þjóðleikhúsinu höfum beðið þess með mikilli eftirvæntingu að mega leiða ykkur inn í nýtt leikár, fullt af nýjungum og spennandi upplifunum! Við erum afar þakklát fyrir að nú geti landsmenn aftur farið að koma saman, njóta og upplifa í sameiningu. Við höfum nýtt tímann vel á undanförnum mánuðum til að endurmeta, breyta og bæta.
Óvenju mörg íslensk verk eru á boðstólum en einnig frábær erlend verk sem við teljum að eigi erindi við okkur öll. Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval barnaleikrita, og galopnum leikhúsið fyrir ungu fólki með einstökum kjörum. Leikhúskjallarinn gengur í endurnýjun lífdaga með fjölbreyttri dagskrá og við hleypum þar líka af stokkunum Hádegisleikhúsi Þjóðleikhússins. Loftið, endurnýjað leikrými á efstu hæð leikhússins, verður ný og spennandi tilraunastofa.
Margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar hafa gengið til liðs við leikhúsið og nýtt leikár er kynnt undir nýrri, listrænni forystu. Við erum staðráðin í að hreyfa við ykkur, áhorfendur góðir, á nýju og metnaðarfullu leikári. Við ætlum að segja kraftmiklar sögur sem skipta máli, hlæja, gráta og kynnast ótal hliðum mannlegrar tilveru.
Til að gera sem best við leikhúsgesti höfum við ráðist í gagngerar endurbætur á forsal með enn betri veitingaaðstöðu. Nú geta gestir gert meira úr kvöldinu með því að mæta fyrr og njóta ljúffengra veitinga fyrir sýningu og í hléi og jafnvel gluggað í úrvalið í nýju leikhúsbókabúðinni okkar. En það sem hefur ekki breyst er að leikhúskortið er enn besta leiðin til að tryggja sér öruggt sæti á besta verðinu. Ég vona að þið, kæru gestir, tryggið ykkur leikhúskort til að upplifa sem flestar ógleymanlegar stundir með okkur á þessu nýja og spennandi leikári.
Verið hjartanlega velkomin í Þjóðleikhúsið. Nú getur allt gerst.

Magnús Geir Þórðarson, þjóðleikhússtjóri
Stóra sviðið – þar sem töfrarnir gerast
Stóra svið Þjóðleikhússins hefur hýst margar af glæsilegustu uppsetningum íslenskrar leikhússögu. Allt frá því að Nýársnóttin, eftir Indriða Einarsson, var frumsýnt á sumardaginn fyrsta árið 1950, hafa áhorfendur hrifist með í eftirminnilegum leiksýningum, stjörnur hafa fæðst á sviði og galdrar leikhússins snert við okkur á einstakan hátt.
Stóra sviðið er útbúið snúningssviði sem enn er notað í dag í nánast óbreyttri mynd. Grunnur hringsviðsins er smíðaður úr járni úr gömlu Ölfusárbrúnni sem hrundi 1944.

Kassinn – ennþá meiri nánd
Kassinn er leiksvið sem opnaðr var árið 2006. Kassi er á efri hæð hússins við Lindargötu 7 sem í daglegu tali er nefnt Jónshús, eftir Jóni Þorsteinssyni íþróttakennara sem lét reisa það árið 1935 og kenndi þar íþróttir og leikfimi um árabil.
Kassinn ber nefn með rentu endar er hann svokallað “black-box” þar sem hægt er að færa til áhorfendabrekkur.

Kjallarinn – klassabúllan
Þjóðleikhúskjallarinn á sér langa sögu og hefur ekki verið einhamur í gegnum tíðina. Nú hefur rýmið fengið kærkomna andlistlyftingu; nýtt færanlegt svið og endurnýjaður tækjabúnaður eru tilvalin vettvangur fyrir afburða afþreyingu.
NÁNAR UM KJALLARANN
Loftið – tilraunir og nýsköpun
Loftið (áður nefnt Brúðuloftið) er nýjasta svið Þjóðleikhússins. Um er að ræða glænýjan vettvang fyrir formtilraunir, rannsóknir og nýsköpun í leikhúsinu.
NÁNAR UM LOFTIÐ
Kúlan – barnaleikhús Þjóðleikhússins
Kassinn er leiksvið sem opnaðr var árið 2006. Kassi er á efri hæð hússins við Lindargötu 7 sem í daglegu tali er nefnt Jónshús, eftir Jóni Þorsteinssyni íþróttakennara sem lét reisa það árið 1935 og kenndi þar íþróttir og leikfimi um árabil.
Kassinn ber nefn með rentu endar er hann svokallað “black-box” þar sem hægt er að færa til áhorfendabrekkur.




















Þjóðleikhúsið leggur mikla áherslu á nýsköpun á meðal íslenskra leikritaskálda. Á hverju ári er kallað eftir leikverkum frá íslenskum höfundum. Aðdragandi þess að nýtt íslenskt verk er tekið til sýninga í Þjóðleikhúsinu getur verið með ólíku móti:
- Leikhúsið kaupir tilbúið verk af höfundi.
- Leikhúsið ræður höfund til að skrifa fyrir leikhúsið, “verk í smíðum”
Höfundur vinnur þá í samvinnu við leikhúsið að þróun leikverks út frá hugmynd og handritsdrögum sem hann hefur lagt fram. Sjá nánar í samningi Þjóðleikhússins og Rithöfundasambands Íslands.
NÁNAR UM HÖFUNDASTARF
Þjóðleikur, námskeið, leikferðir og fleira
Þjóðleikhúsið hefur mikilvægt fræðsluhlutverk sem það leysir af hendi með margvíslegum hætti. Fræðsluverkefnið Þjóðleikur hefur verið mikilvægur þáttur í að tengja leikhúsið landsbyggðinni.Reglulega eru haldin námskeið á vegum Þjóðleikhússins, ýmist fyrir leikara eða tæknifólk. Á vegum Endurmenntunar HÍ er einnig boðið upp á námskeið á hverju ári þar sem leikhúsgestir geta kafað ofan í ákveðið leikverk.
NÁNAR UM FRÆÐSLUSTARF
Unga fólkið og leikhúsið
Á hverju ári býður Þjóðleikhúsið leikskóla- og grunnskólabörnum á sýningar auk þess sem farið er í leikferðir víða um land til að ná til barna á landsbyggðinni og auka áhuga þeirra og læsi á leikhúsi.
NÁNAR







-
Halldór Guðmundssonformaður, skipaður án tilnefningar
-
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttirvaraformaður, skipuð án tilnefningar
-
Sjón – Sigurjón Birgir Sigurðssontilnefndur af SAFAS (fagfélögum innan Sviðslistasambands Íslands)
-
Kolbrún Halldórsdóttirtilnefnd af SAFAS
-
Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttirtilnefnd af SAFAS
-
Jóna Finnsdóttirskipuð án tilnefningar
-
Magnús Árni Skúlasonskipaður án tilnefningar
-
Sigmundur Örn Arngrímssontilnefndur af SAFAS
-
Ragnheiður Maísól Sturludóttirtilnefnd af SAFAS
-
María Ellingsentilnefnd af SAFAS
1873 Hugmyndinni um Þjóðleikhús í fyrsta sinn varpað fram skriflega, svo vitað sé, í sendibréfi sem Indriði Einarsson skrifar Sigurði Guðmundssyni.
1907 Indriði setur formlega fram hugmynd sína um Þjóðleikhús 34 árum síðar, í tímaritinu Skírni, með hugmyndum um stærð hússins og útbúnað, og tilheyrandi útreikningi á kostnaði.
Indriði skrifar í tímaritið Óðin og hvetur enn til þess að ráðist verði í að byggja Þjóðleikhús. Þar segir hann m.a.:Leikhúsið sameinar í sér allar listir í einu, ef það er fullkomnara en við höfum átt að venjast. Það er efsta loft menningarinar í hverju landi.Með þessum skrifum hefst fyrsti kaflinn í sögu Þjóðleikhússins. Eftir þetta leggja margir áhugamenn um leiklist málefninu lið, m.a. með skrifum í blöð. Fremstur í þeirra röð er vinur Indriða, skáldið Einar H. Kvaran, sem skrifar margar skeleggar greinar um ágæti þess að stofna þjóðleikhús.
Leikfélag Reykjavíkur er rekið með miklum blóma á þessum tíma, og setur m.a. upp mörg íslensk verk. Leikfélagið gefur allan ágóða af sýningu Nýársnæturinnar í sjóð til leikhúsbyggingar. En þó áhugann skorti ekki, er enn langt í land með þjóðleikhús. Brautryðjendurnir eru af samtímafólki taldir óraunsæir draumóramenn, og það er almenn skoðun ráðamanna að þjóðleikhús sem myndi kosta ekki minna en 250 þúsund krónur, sé einfaldlega of dýrt fyrirtæki fyrir litla þjóð. Illa gengur að afla fjár, og þykir útséð með að nokkuð verði af framkvæmdum um ófyrirsjáanlega framtíð.
Sú hugmynd kemur upp að fjármagna byggingu þjóðleikhúss með því að láta allan skemmtanaskatt renna til byggingar þess, og standa undir rekstri þess. Hugmyndin var í því fólgin að láta lægri skemmtun styðja hina æðri og þroskavænlegriÞar með verða þáttaskil, því skyndilega er bygging þjóðleikhúss orðin raunhæfur möguleiki. Nokkrir nánustu vandamenn Indriða Einarssonar og Jónas Jónsson alþingismaður gera með sér bandalag um þessa lausn málsins.
Þingmennirnir Jakob Möller og Þorsteinn M. Jónsson bera fram frumvarp um að skemmtanaskattur renni í byggingu þjóðleikhúss og það er samþykkt og lögfest með miklum meirihluta á Alþingi.
Í fyrstu byggingarnefndinni sitja Indriði Einarsson, formaður, Einar H. Kvaran og Jakob Möller. Þeir starfa án launa. Farið er að huga að teikningum hússins, og Guðjón Samúelsson, byggingameistari ríkisins er fenginn til verksins. Frá þessum fyrstu teikningum og til vígsludags eiga eftir að líða 25 ár.
Grunnur hússins er tekinn 1929, en á næstu tveimur árum er húsið steypt upp og gert fokhelt.1932Skemmtanaskattssjóðurinn er tekinn af húsinu til ársins 1941.
Þjóðleikhúsið er hernumið til 1945 og þar geymd ýmis hergögn breska hersins.
Þjóðleikhúsið er opnað formlega.21 ár leið frá fyrstu skóflustungu til vígsludags, en ef frá eru talin þau ár sem allt var í biðstöðu vegna fjárskorts eða hernáms, var byggingatíminn 7 ár.
Stóra salnum er breytt, í stað tveggja áhorfendasvala koma nú einar svalir, sjónlínur áhorfenda og hljómburður er bættur. Leikhúsloftið útbúið.2006-2008Viðamiklar viðgerðir á ytra byrði leikhússins.
Viðbygging við austurhlið leikhússins eykur geymslurými leikmynda og tengir Smíðaverkstæði í kjallara við Stóra sviðið.
Aðgengi fatlaðra að aðalbyggingu bætt með viðbyggingu fyrir lyftu.
Aðstaða gesta, veitingaaðstaða, andyri og Þjóðleikhúskjallari í aðalbyggingu stórbætt. Bætt úr lýsingu, innréttingum og húsgögnum. Byggingin lýst upp að utan. Aðstaðan færð nær upprunalegu höfundaverki Guðjóns Samúelssonar.