Söngleikurinn Kabarett
Er lífið eintóm vonbrigði?
Ekkert mál!
Hér getur þú öllu gleymt!
Á Kabarettklúbbnum Kit Kat getur þú gleymt öllum áhyggjum. Tónlistin er falleg, fólkið er fallegt og þér er boðið að njóta gleðinnar með okkur, og hverfa eina öld aftur í tímann inn á stórfjörugan en afar kynlegan skemmtistað í Berlín. Í næturhúminu blómstra ástin, frelsið og listin en samtímis eykst ógn nasismans fyrir utan veggi klúbbsins dag frá degi. Ódauðleg klassík sem fjallar á ögrandi hátt um samfélag á heljarþröm.
Söngleikurinn sem sló svo rækilega í gegn að það var engin leið að hætta
Leikhús ókunnuga fólksins tók þá djörfu ákvörðun á síðasta leikári að setja upp stórsöngleik í Kjallaranum og undirtektir áhorfenda voru vægast sagt frábærar. Allar sýningar yfirfylltust og ekki var um annað að ræða en að halda áfram á þessu leikári!
Grímuverðlaunin fyrir dans- og sviðshreyfingar
Sýningin var tilnefnd til þriggja Grímuverðlauna og hlaut verðlaunin í flokki dans- og sviðshreyfinga.
Leikhús ókunnuga fólksins í samstarfi við Þjóðleikhúsið.
Leikarar
Hljómsveit