Nýtt eldhús eftir máli

Nýtt eldhús eftir máli

Getur draumaeldhúsið breytt lífi þínu?
SVIÐ
Kassinn
Verð
7.950
Frumsýning
17. 9. 2026
Kaupa leikhúskort

Friðgeirskur húmor, frygð og fantasía!

Þegar Daníel missir vinnuna fer athygli hans öll smám saman að beinast að eldhúsinnréttingunni. Og möguleikarnir á úrbótum eru svo margir og heillandi! En Daníel veitist erfitt að vekja ástríðu konu sinnar, Soffíu, gagnvart verkefninu. Hann gleymir sér löngum stundum yfir kynórum um starfsfólk innréttingabúða og ekki bætir úr skák þegar búsáhöldin lifna við og leggja orð í belg.

Fantasía og raunveruleiki renna saman á grátbroslegan hátt í þessu nýja leikriti eftir Friðgeir Einarsson. Í senn bráðfyndið og alvarlegt verk um tilbreytingarleysi hversdagsleikans, einmanaleikann og löngun eftir að mynda tengsl. Hvað er það í raun sem við viljum í lífinu? Þegar búið er að gera allt, ná öllum markmiðum, hvað þá?

Stórskemmtilegt og lúmskt verk um hversdagsleikann og knýjandi þörf okkar fyrir tilgang og nánd.

Gáskafullur könnunarleiðangur um íslenskan hversdagsleika

Sýn Friðgeirs Einarssonar á hversdagsleikann er í senn næm, nöpur og fyndin. Hann hefur komið víða við í íslensku leikhúslífi síðustu ár, sem leikskáld, leikari og einn af meðlimum leikhópsins Kriðpleirs. Nýtt eldhús eftir máli er fyrsta leikritið sem Friðgeir skrifar fyrir leikhóp Þjóðleikhússins, en það var flutt á leikritahátíð Þjóðleikhússins Gula dreglinum

Ég hef látið mig dreyma um að snerta borðplötuna. Bókstaflega látið mig dreyma.

Leikarar

Listrænir stjórnendur

Opnunartími miðasölu

Þjóðleikhúsið er lokað í sumar.  Miðasalan á leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.  Við opnum aftur 18.ágúst.  Gleðilegt sumar.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími