Friðgeir Einarsson er sviðslistamaður og rithöfundur, búsettur í Reykjavík. Hann útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2008 og hefur síðan tekið þátt í tugum leiksýninga sem höfundur og leikari, á vegum ýmissa leikhúsa og leikhópa og á sviðslistahátíðum erlendis.
Leikrit Friðgeirs Nýtt eldhús eftir máli var flutt í leiklestri sem verk í vinnslu á leikritahátíð Þjóðleikhússins, Gula dreglinum, vorið 2025 og var í kjölfarið valið til uppsetningar í leikhúsinu haustið 2026.
Friðgeir samdi og lék leikverkið Club Romantica á vegum leikhópsins Abendshow í Borgarleikhúsinu. Einnig samdi hann og lék í Útlendingnum – morðgátu í Borgarleikhúsinu.
Friðgeir er einn af meðlimum leikhópsins Kriðpleir sem hefur vakið mikla athygli fyrir útvarpsleikverk og leiksýninguna Innkaupapokann. Hann starfaði einnig meðal annars með leikhópunum Ég og vinir mínir og 16 elskendum.
Friðgeir hefur komið talsvert að gerð leikins efnis fyrir sjónvarp og útvarp. Hann var einn af höfundum Áramótaskaups RÚV 2022 og 2024, og lék nokkur hlutverk. Friðgeir lék annað aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum Hæst í Sjónvarpi Símans, og kom að skrifum og þróun persóna. Friðgeir fer jafnframt með hlutverk í þáttaseríunum Ögrum skorið og Ljúfa líf sem báðar eru væntanlegar á næstu misserum.
Friðgeir hefur getið sér gott orð sem rithöfundur og sent frá sér fimm bækur, skáldsögur og smásagnasöfn.
Friðgeir hlaut Grímuverðlaunin fyrir leikrit ársins fyrir Club Romantica. Hann var tilnefndur til Grímunnar fyrir leik sinn í Innkaupapokanum.
Friðgeir hefur hlotið ýmsar tilnefningar til Grímunnar ásamt leikhópum fyrir leikrit, sýningu og útvarpsleikrit ársins, meðal annars ásamt Kriðplei fyrir Innkaupapokann, Crisis Meeting, Síðbúna rannsókn, Tiny Guy, Vorar skuldir og Litlu jólin, ásamt Abendshow fyrir Club Romantica, ásamt 16 elskendum fyrir sýninguna Sýningu ársins og ásamt leikhópnum Ég og vinir mínir fyrir Húmanimal.