Listrænn ráðunautur
Melkorka Gunborg Briansdóttir er listrænn ráðunautur við Þjóðleikhúsið.
Melkorka Gunborg Briansdóttir útskrifaðist af sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands í september 2025. Hún er einnig með B.A. próf í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og University College London. Melkorka skrifaði leikritið Partý dauðans fyrir Gula dregilinn. Hún var dramatúrg og aðstoðarleikstjóri í Óresteiu. Hún var aðstoðarleikstjóri við sýningarnar Þetta er Laddi og Moulin Rouge! Söngleikurinn í Borgarleikhúsinu. Melkorka hefur tekið þátt í ýmsum sýningum í sjálfstæðu sviðslistasenunni sem höfundur, meðhöfundur, aðstoðarleikstjóri og leikstjóri, meðal annars í samstarfi við sumarleikhúsið Afturámóti sumarið 2024. Einnig hefur hún starfað við dagskrárgerð í útvarpi fyrir Rás 1 og verið með innslög í Lestinni, Tengivagninum og Víðsjá.