/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Örvar Smárason

/

Örvar Smárason er ljóðskáld, rithöfundur, tónskáld og tónlistarmaður. Hann semur tónlist fyrir Nýtt eldhús eftir máli í Þjóðleikhúsinu. Hann er einn af stofnmeðlimum hljómsveitarinnar múm og hefur auk þess spilað með hljómsveitum á borð við FM Belfast og Singapore Sling. Örvar hefur sent frá sér nóvelluna Úfin, strokin og ljóðabókina Gamall þrjótur, nýir tímar og smásagnasafnið Svefngrímuna, sem hann hlaut nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir. Smásagan Sprettur úr safninu hlaut fyrstu verðlaun á Júlíönuhátíðinni.

Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími