Leikmunadeild
Mathilde er leikmyndahöfundur, myndlistarmaður og leikmunagerðarmaður, og vinnur bæði fyrir leikhús og kvikmyndir. Hún hefur starfað í leikmunadeild Þjóðleikhússins frá árinu 2018. Hún gerði leikmynd fyrir Ómar orðabelg í Þjóðleikhúsinu.
Hún lauk MA-prófi í leikmyndahönnun frá leiklistarháskólanum ENSATT í Lyon árið 2017, en hafði áður lokið diplómanámi í hönnun frá Duperré-hönnunarskólanum í París.
Hún hefur unnið að ýmsum verkefnum sem leikmunagerðarmaður, tæknistjóri, sviðsmaður og myndlistarmaður.
Hún vinnur nú að myndlistarverkefni sem hverfist um vita á Íslandi, sjá https://www.facebook.com/vitiproject/
Heimasíða Mathilde: https://morantmathilde.weebly.com/