Mútta Courage og börnin

Mútta Courage og börnin

Eitt magnaðasta leikrit 20. aldarinnar í krassandi og fjörugri uppsetningu
SVIÐ
Stóra Sviðið
Leikstjóri
Una Þorleifsdóttir
Frumsýnt
20. október 2023
Svið
Stóra sviðið
Miðaverð
7250
Kaupa leikhúskort

Eitt magnaðasta leikrit 20. aldarinnar í krassandi og fjörugri uppsetningu

Mútta Courage er í senn sótsvartur gamanleikur og vægðarlaust ádeiluverk, og þetta magnþrungna leikrit Bertolts Brechts og Margarete Steffin um eyðingarmátt stríðsins, kapítalismann og sjálfsbjargarviðleitni einstaklinganna talar nú til okkar af endurnýjuðum krafti. Una Þorleifsdóttir nálgast efniviðinn á nútímalegan, litríkan og húmorískan hátt og í sýningunni mun hljóma ný tónlist eftir Valgeir Sigurðsson og Helga Hrafn Jónsson.

Leikritið fjallar um ólíkindatólið Múttu Courage sem ferðast um í stríðshrjáðri Evrópu með söluvagn sinn. Hún hefur lifibrauð sitt af því að selja hernum varning og einsetur sér að komast af ásamt stálpuðum börnum sínum þremur. Mútta Courage er hörkutól, kjaftfor og fyndin, sölumaður af guðs náð, en sú spurning verður sífellt ágengari hver sé í rauninni að græða.

Allt frá því að verkið var frumflutt hafa áhorfendur víðs vegar um heim hlegið og grátið með Múttu Courage, sem hlýtur að teljast ein magnaðasta kvenpersóna leikbókmenntanna. Verkið birtist okkur nú í glænýrri gerð sem kemur skemmtilega á óvart.

 

6. sýning – umræður eftir sýningu. 

7. sýning – textun á ensku og íslensku.

 

Kveikjumerking (e. Trigger Warning): Sjá nánar um viðvaranir vegna umfjöllunarefnis leiksýninga og notkunar tæknibúnaðar hér.

Ég er fyrst og fremst að reyna að framfleyta mér og börnunum mínum með þessum vagni hérna. Þetta er rekstur, ekki fasteign. Og ég hef engan tíma fyrir einhvern prívat bisness.

Leikarar

Listrænir stjórnendur

Titill á frummáli: Mutter Courage und ihre Kinder

Upprunaleg tónlist við verkið er eftir Paul Dessau, en hún er ekki notuð í sýningunni.

Sýningarréttur: Nordiska ApS, www.nordiska.dk

Aðrir aðstandendur

Sýningarstjórn
Aðstoðarmaður leikstjóra
Teymisstjóri leikmyndaframleiðslu
Yfirumsjón búninga
Yfirumsjón leikgerva
Yfirumsjón leikmuna
Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími