25. Okt. 2023

Frumsýning á Mútta Courage og börnin á Stóra sviðinu

Fimmtudaginn 26. október frumsýnir Þjóðleikhúsið Múttu Courage og börnin eftir Bertholt Brecht og Steffin á Stóra sviðinu. Þetta magnþrungna leikrit Bertolts Brechts og Margarete Steffin um eyðingarmátt stríðsins, kapítalismann og sjálfsbjargarviðleitni einstaklinganna talar nú til okkar af endurnýjuðum krafti.

KAUPA MIÐA

Leikritið fjallar um ólíkindatólið Múttu Courage sem ferðast um í stríðshrjáðri Evrópu með söluvagn sinn. Hún hefur lifibrauð sitt af því að selja hernum varning og einsetur sér að komast af ásamt stálpuðum börnum sínum þremur. Mútta Courage er hörkutól, kjaftfor og fyndin, sölumaður af guðs náð, en sú spurning verður sífellt ágengari hver sé í rauninni að græða. Í sýningunni hljómar ný tónlist eftir Valgeir Sigurðsson og Helga Hrafn Jónsson.

Allt frá því að verkið var frumflutt hafa áhorfendur víðs vegar um heim hlegið og grátið með Múttu
Leikritið fjallar um ólíkindatólið Múttu Courage sem ferðast um í stríðshrjáðri Evrópu með söluvagn sinn. Hún hefur lifibrauð sitt af því að selja hernum varning og einsetur sér að komast af ásamt stálpuðum börnum sínum þremur. Mútta Courage er hörkutól, kjaftfor og fyndin, sölumaður af guðs náð, en sú spurning verður sífellt ágengari hver sé í rauninni að græða. Allt frá því að verkið var frumflutt hafa áhorfendur víðs vegar um heim hlegið og grátið með Múttu Courage, sem hlýtur að teljast ein magnaðasta kvenpersóna leikbókmenntanna. Verkið birtist okkur nú í glænýrri gerð sem kemur skemmtilega á óvart.

NÁNAR UM SÝNINGU

Leikarar
Leikararhópurinn er glæsilegur, en auk Steinunnar Ólínu leika Almar Blær Sigurjónsson, Atli Rafn Sigurðsson, Ernesto Camillo Aldazábal Valdés, Guðrún S. Gísladóttir, Hildur Vala Baldursdóttir, Hilmar Guðjónsson, Oddur Júlíusson, Sigurður Sigurjónsson og Vigdís Hrefna Pálsdóttir í sýningunni.

Listrænir stjórnendur:
Þýðing: Bjarni Jónsson
Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir
Búningar: Filippía I. Elísdóttir
Tónlist: Valgeir Sigurðsson og Helgi Hrafn Jónsson
Dramatúrg: Hrafnhildur Hagalín
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson
Myndband: Ásta Jónína Arnardóttir
Hljóðhönnun: Þóroddur Ingvarsson og Valgeir Sigurðsson

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími