Leikari
Oddur Júlíusson útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ árið 2013. Hann stundaði einnig dansnám við Listdansskóla Íslands. Hann leikur í Sem á himni og Draumaþjófnum í Þjóðleikhúsinu í vetur. Áður hefur hann m.a. leikið hér í Ástu, Framúrskarandi vinkonu, Kardemommubænum, Slá í gegn, Ronju ræningjadóttur, Einræðisherranum, Jónsmessunæturdraumi, Loddaranum, Fjarskalandi, Tímaþjófnum, Oddi og Sigga, Hafinu, Lofthrædda erninum Örvari, Í hjarta Hróa hattar, ≈ [um það bil], Hleyptu þeim rétta inn, Atómstöðinni, Meistaranum og Margarítu og Óvitum. Hann lék í kvikmyndunum Málmhausi, Vargi og Gullregni og þáttaröðunum Pabbahelgum og Ráðherranum. Hann var tilnefndur til Grímunnar fyrir ≈ [um það bil] og Atómstöðina.
Meira um feril:
Oddur útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ árið 2013. Hann stundaði einnig dansnám við Listdansskóla Íslands í nútímadansi. Hann leikur í Ástu, Framúrskarandi vinkonu og Kardemommubænum í Þjóðleikhúsinu í vetur. Hér hefur Oddur leikið í sirkussöngleiknum Slá í gegn, Ronju ræningjadóttur, Einræðisherranum, Jónsmessunæturdraumi, Loddaranum, Fjarskalandi, Tímaþjófnum, Oddi og Sigga, Hafinu, Lofthræddi örninn Örvar, Í hjarta Hróa hattar, ≈ [um það bil], Hleyptu þeim rétta inn, Ævintýrum í Latabæ, Fjalla-Eyvindi, Atómstöðinni, Meistaranum og Margarítu, Dýrunum í Hálsaskógi, Óvitum, Þingkonunum, Spamalot og Eldrauninni. Hann lék einnig hér í Ofsa á vegum Aldrei óstelandi og Svörtum fjöðrum sem sýnt var í samstarfi við Sigríði Soffíu. Oddur sýnir með spunahópnum Improv Ísland í Þjóðleikhúskjallaranum á miðvikudagskvöldum og hefur verið virkur þáttakandi í þeim hópi frá stofnun hans 2015. Oddur lék í kvikmyndunum Málmhaus, Vargur og Gullregn. Hann lék í þáttaröðunum Pabbahelgar og Ráðherrann. Oddur var tilnefndur til Grímunnar fyrir leik sinn í ≈ [um það bil] og Atómstöðinni og einnig fyrir tónlist í Ofsa. Auk þess var sýningin Oddur og Siggi, þar sem Oddur er meðhöfunudur, tilnefnd sem barnasýning ársins