/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir

Leikari
/

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir lauk leiklistarprófi frá Drama Centre í London 1990. Hún hefur leikið fjölda hlutverka hjá Þjóðleikhúsinu, LA, LR, leikhópum og í kvikmyndum og sjónvarpi. Hún hefur einnig sent frá sér bækur, stýrt sjónvarpsþáttum og var útgefandi og ritstjóri Kvennablaðsins. Hún leikur hér titilhlutverkið í Múttu Courage og í Draumaþjófnum og Eltum veðrið í vetur. Hún lék hér m.a. í Hvað sem þið viljið, Sjö ævintýrum um skömm, Nashyrningunum, Efa, Pétri Gaut, My Fair Lady, Gauragangi, Fávitanum, Villiöndinni, Þremur systrum, Sjálfstæðu fólki, Hægan, Elektra, og Draumi á Jónsmessunótt. Hún lék m.a. í sjónvarpi í Verbúð, Svörtu söndum, Mannasiðum og Ófærð. Hún var þáttastjórnandi hjá Stöð 2 í þættinum Stóra sviðið. Hún hlaut Grímuverðlaunin fyrir Ríkarð III og var tilnefnd fyrir Nashyrningana og Efa. Hún hlaut Edduverðlaunin fyrir Fanga og Rétt.

 

Nánar um feril:

Steinunn Ólína hóf feril sinn í atvinnuleikhúsi 16 ára gömul hjá Leikfélagi Reykjavíkur í söngleiknum Land míns föður árið 1985. Hún lauk svo leiklistarprófi frá Drama Centre í London 1990 og var fljótlega að námi loknu fastráðin leikari við Þjóðleikhúsið, allt til ársins 2005.

Steinunn Ólína lék í Efa í Þjóðleikhúsinu leikárið 2017-2018, eftir nokkurt hlé frá leikhúsinu. Nýleg verkefni eru Nashyrningarnir, Útsending, Kardemommubærinn og Leitin að jólunum.

Fyrsta hlutverk hennar hér í Þjóðleikhúsinu var Sólveig í Pétri Gaut og sama ár lék hún elstu dótturina Elízu í Söngvaseiði. Meðal annarra hlutverka Steinunnar Ólínu hér í Þjóðleikhúsinu má nefna Elísu Doolittle í My Fair Lady, brúðina í Blóðbrullaupi, Lindu í Gauragangi, ræningjastelpuna í Snædrottningunni, Dídí og Tótu í Sönnum sögum af sálarlífi systra, Aglaju í Fávitanum, Möggu í Þreki og tárum, Elísu Martinelli í Hamingjuráninu, Heiðveigu í Villiöndinni, Hodel í Fiðlaranum á þakinu, Irínu í Þremur systrum, Yndisfríði í Yndisfríði og ófreskjunni, Margréti í Kaffi og herbergisþernuna í Tveimur tvöföldum. Steinunn Ólína lék hér einnig Ástu Sóllilju í Sjálfstæðu fólki, Maríu mey og frillu Jóns í Gullna hliðinu og yngri leikkonuna í Hægan, Elektra eftir Hrafnhildi Hagalín Guðmundsdóttur. Hún lék Maureen í söngleiknum RENT. Hún fór með hlutverk Soniu í Lífinu þrisvar sinnum, Helenu í Draumi á Jónsmessunótt og Öddu Arnalds í Allir á svið.

Steinunn fór með aðalhlutverk í Tjútti og trega hjá Leikfélagi Akureyrar, lék hlutverk nemandans í Kennslustundinni í Kaffileikhúsinu, Sheilu í Hárinu hjá Flugfélaginu Lofti og hlutverk Hildar í Ég er meistarinn eftir Hrafnhildi Hagalín Guðmundsdóttur í London.

Steinunn lék hjá Leikfélagi Reykjavíkur í leikritunum Landi míns föður, Dunganon, Þrúgum reiðinnar og söngleiknum Chicago, þar sem hún fór með hlutverk Roxy Hart.

Steinunn hefur leikið í kvikmyndum og í sjónvarpi, nú síðast í framhaldsþáttunum Mannasiðir, Stellu Blómkvist, Rétti, Föngum, og Ófærð. Í upphafi ferils síns lék hún í sjónvarpsþáttaröðunum Litbrigðum jarðarinnar og Sigla himinfley. Meðal kvikmynda sem Steinunn hefur leikið í eru Hvernig á að vera Klassadrusla, Eden, Vargur, Gullregn, Ein stór fjölskylda, Bjólfskviða, Perlur og svín og Ikingut.

Steinunn stjórnaði sjónvarpsþættinum Milli himins og jarðar um tveggja ára skeið hjá RÚV.

Steinunn rak og ritstýrði Kvennablaðinu.

Steinunn hlaut Grímuverðlaunin fyrir hlutverk Margrétar í Ríkarði III. Hún var tilnefnd fyrir leik sinn í Nashyrningunum og Efa. Hún hlaut Edduverðlaunin fyrir leik sinn í Föngum og Rétti.

/

Sýningar

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími