Þar sem hversdagsleikinn og eilífðin mætast
Viðtal við Friðgeir Einarsson, leikskáld sýningarinnar Nýtt eldhús eftir máli

Hver var kveikjan að þessu verki, hvar hófst þetta ferðalag?
Mér var boðið að vera með vinnustofu hér í Þjóðleikhúsinu og taka síðan þátt í leikritahátíðinni Gula dreglinum. Það freistaði mín en mig vantaði hugmynd að verki. Ég hafði þá nokkru áður skrifað og gefið út smásögu um mann sem er með þráhyggju fyrir eldhúsinnréttingum og hugsaði með mér að hún gæti verið vísir að stærra verki. Smásagan heitir eins og leikritið Nýtt eldhús eftir máli og vísar þannig til smásögu Svövu Jakobsdóttur, Eldhús eftir máli, án þess að byggjast á henni að öðru leyti. Þar kynnir sig þessi persóna sem verður síðan aðalpersónan í leikverkinu.
Margir munu koma til með að velta fyrir sér tengslum þessa verks við smásögu Svövu Jakobsdóttur. Þar er það konan sem verður eins konar fangi nýs eldhúss sem eiginmaður hennar sérsníður handa henni, en í leikritinu þínu er það Daníel sem er nokkurs konar fangi draumsins um nýtt eldhús. Hvernig myndir þú segja að þessi verk tengdust?
Í sögu Svövu hannar karl eldhús fyrir konuna sína, sníður það til svo það sé alveg fullkomið fyrir hana, en á endanum skiptir hann líka út konunni og fær sér nýja sem passar betur inn í þessa draumsýn. Leikritið mitt fjallar um karl sem vill sníða eldhús fyrir sjálfan sig, og fer af því tilefni að setja spurningarmerki við eldhúshönnun yfirhöfuð. Í dag búum við við allt annan veruleika en Svava og hennar lesendur gerðu þegar sú saga kom út. Karlar eru í auknum mæli farnir að taka til hendinni í eldhúsinu og á heimilinu almennt, og hef ég auðvitað ekkert nema gott um það að segja, svo það komi fram. Í Daníel býr hins vegar ákveðin gremja gagnvart þessu hlutskipti sínu. Að einhverju leyti finnst honum hann vera orðinn bæði karlinn og konan á heimilinu, því eiginkona hans sinnir nánast engum heimilisstörfum, hvorki hinum hefðbundnu kvennastörfum né hinum hefðbundnu karlastörfum. Hversdagsraunir Daníels eru þannig allt aðrar en hjá persónunum í sögu Svövu, enda hefur mikið vatn runnið til sjávar á þeim sextíu árum sem liðin eru síðan sagan birtist fyrst á prenti og miklar breytingar orðið á þjóðfélaginu – allflestar jákvæðar að mínu mati.
Er það helst þessi kynjavinkill sem vakir fyrir þér í tengslum við staðsetninguna eldhús? Eða var það eitthvað annað sem dró þig að eldhúsrýminu?
Hlutskipti aðalpersónunnar samsvarar kannski að einhverju leyti minni upplifun, þó að ég vilji taka skýrt fram að ég og konan mín skiptum heimilisverkum nokkuð jafnt og að ég hef enga ástæðu til að bera mig illa. En eftir því sem ég verð eldri ver ég sífellt meiri tíma í eldhúsinu að stússa ýmislegt, hafa til mat og smyrja nesti. Það hefur eiginlega orðið mín helsta starfsstöð inni á heimilinu. Þegar við fjölskyldan fluttum inn í íbúð þar sem eldhúsinnréttingin var farin að láta verulega á sjá, orðin gömul og ljót, varð ég fljótt heltekinn af nánast óseðjandi hvöt til að skipta öllu út. Mér leið eins og það hefði ekkert að segja að taka til, þó að ég þrifi allt og þurrkaði innan úr öllum skápum og setti allt leirtauið í vélina þá væri innréttingin samt alltaf jafn óviðunandi. Kannski ekki hægt að segja að það hafi dregið verulega úr mínum lífsgæðum að eldhúsið væri svona, það virkaði allt, en á einhverjum tímapunkti hugsar maður: Á ég ekki meira skilið? Er ég ekki meira virði en þetta? Ég þráði eitthvað annað og meira, fannst synd að þurfa að verja drjúgum hluta jarðlífsins á ekki merkilegri stað, lét mig dreyma um eitthvað annað og meira. Það er kannski ekki háleitur draumur en draumur engu að síður.

Verkið hverfist um aðalpersónuna Daníel og Soffíu, eiginkonu hans. En í því eru aðrar raddir sem taka á sig ýmsar myndir, bæði realískar og súrrealískar. Hvaðan spretta þær?
Þær urðu mjög snemma hluti af verkinu. Daníel, aðalpersónan, er gríðarlega hrifinn af marmara, hann upplifir að það stafi frá honum svo mikilli orku og útgeislun að hann heyrir söng þegar hann leggur eyrað upp að marmaraborðplötu. Þegar ég var búinn að skrifa þetta fannst mér eðlilegt að áhorfendur fengju að heyra þennan söng líka og skrifaði smá söngtexta fyrir borðplötuna, sem er reyndar búið að klippa úr sýningarhandritinu. Marmari er stórmerkilegt fyrirbæri, sem hefði frá mörgu að segja ef hann gæti talað. Hann er í rauninni set sem var einhvern tímann á hafsbotni, samþjappaður lífmassi, bara rotnun og skítur og dauði og beinagrindur, milljónir milljóna lífa sem börðust fyrir því að halda áfram að lifa og að afkomendur þeirra myndu halda áfram að lifa, og svo deyja allir og þjappast saman í þennan lífmassa sem færist síðan með flekahreyfingum upp í fjöll á Ítalíu þar sem hann er skorinn niður í sneiðar og sendur síðan í einhverja búð í Síðumúla þar sem þú getur keypt hann og notað sem borðplötuefni. Mér fannst það eitthvað svo heillandi, þarna mætast hversdagsleikinn og eilífðin í einhverju sem blasir við þér á hverjum degi. Það er að segja ef þú vilt hafa marmaraborðplötu, sem er ekkert endilega víst að þú hafir efni á og er alls ekki praktískt eins og persónurnar í verkinu benda á.
Þegar borðplatan var farin að tala vildu fleiri hlutar innréttingarinnar kveðja sér hljóðs. Ætli það megi ekki segja að þessar ólíku raddir tjái á einhvern hátt ólíka kima í hugarheimi Daníels. Til dæmis er orðræða sorptunnunnar lituð af eitraðri karlmennsku, hún segir hluti sem Daníel vill ekki taka undir en er engu að síður kannski einhver hluti af honum sjálfum. Uppþvottavélin lætur líka í sér heyra, hún á í tilfinningaríku samtali við Daníel. Ég á sjálfur það til að mynda tilfinningarík sambönd við svona tæki, sem er varla mjög heilbrigt af því að þetta eru bara tæki og hafa ekki meðvitund. Ég átti til dæmis í stormasömu sambandi við gömlu uppþvottavélina okkar. Hún gerði alltaf það sem ég bað hana um, en gerði það ekki vel. Framhliðin var brotin og ég var búinn að reyna að líma hana og það var ekki fallegt, þannig að á endanum fór ég með hana í Sorpu og henti henni. Og það var einhvern veginn svo sorglegt að sjá hana í gáminum þegar ég var búin að fleygja henni. Hún lá þarna buguð og niðurlægð og án tilgangs, af því að hún hafði brugðist mér.

Í mörgum verka þinna fjallar þú um hversdagsleikann, á hátt sem er fullur af þurrum húmor og glettni en gjarnan líka þunga, það býr í þeim undirliggjandi þunglyndi, einmanaleiki og leit að tilgangi. Hvað er það við hversdagslegar aðstæður sem dregur þig að þeim?
Það er einhver framandleiki sem ég hef alltaf upplifað gagnvart hversdagsleikanum, mér finnst hann í senn ógnvænlegur og heillandi. Maður er kannski að skakklappast um Skeifuna að ná í eitthvert hakk þegar það rennur upp fyrir manni: Er þetta allt og sumt? Fyrir röð ótrúlegra tilviljana er ég hér, vitund í líkama sem fúnkerar, og hef valið mér að vera hér, í Skeifunni? Er þetta tilgangur minn? Mér finnst vera einhver spenna á milli þess að láta þetta yfir sig ganga á hverjum degi, þetta hversdagslega vafstur, og að vera síðan að hugsa um dauðann og lífið og eilífðina, eins og ég geri ráð fyrir að allir geri upp að vissu marki. Að vera bæði hugsandi vera, andi, sál, en líka fangi í þessu gangandi kjötstykki. Þetta veldur mér sífelldri undrun.
Það sem er kunnuglegast og hversdagslegast verður einhvern veginn mest framandi?
Já, einmitt. Og þegar maður kippir því úr raunveruleikanum og setur inn á leiksvið, þá líður mér eins og það gerist einhver galdur. Mér finnst það alltaf jafn heillandi.
Og svo er eitthvað við fyrirbæri sem eru svo hversdagsleg og leiðinleg að enginn annar sýnir þeim áhuga; mér líður eins og ég eigi þau út af fyrir mig. Ég hef ekki áhuga á morðsögum af því að það eru til hundrað milljón morðsögur, en aftur á móti er ekki líklegt að neinn annar fái áhuga á gati í vegg þar sem áður var hraðbanki. Þar sé ég sorg, nostalgíu og jafnvel fegurð. Ef enginn annar hefur áhuga á tiltekinni hugmynd þá á ég hana alveg út af fyrir mig. Kannski er ég bara svona átakafælinn.
Nú hefur þú líka skrifað skáldsögur og efni fyrir sjónvarp. Hvað er það við leikhúsið sem þér finnst heillandi? Tengist það kannski þessu hversdagslega á einhvern hátt, að leikhúsið geti leyst það upp eða opnað það, fengið mann til að sjá það upp á nýtt?
Já, það gæti verið. Í mínum huga er leikhúsið nokkurs konar rannsóknarstofa þar sem hægt er að rannsaka samskipti, hvað það er sem knýr okkur áfram, daglegt líf andspænis háleitari markmiðum. Það er vettvangur til að skoða stórar hugmyndir en líka hið smáa og hversdagslega. Á einni kvöldstund fá áhorfendur og sviðslistafólk tækifæri til að skoða hluti í sameiningu, prófa alls konar pælingar, almennar og persónulegar. Það finnst mér mjög spennandi. Leikhúsið er nokkurs konar hraðall fyrir hugmyndir.
Þú hefur verið meðlimur sviðslistahópa á borð við 16 elskendur, Ég og vinir mínir og Kriðpleir þar sem leikhópurinn vinnur sýningar í sameiningu og höfundarnir eru margir, og stundum leikstjórarnir líka. Nú stígur þú inn í hefðbundnara samhengi þar sem þú ert í hlutverki leikskálds og listræn sýn leikstjórans stýrir ferðinni. Hvernig upplifir þú þessar ólíku tegundir ferla?
Þetta hefur allt sína kosti og galla. Það hljómar kannski þversagnakennt, en í þessu ferli, sem hefur verið með hefðbundnara móti, hef ég upplifað ákveðið frelsi. Ég hef fengið frið til að einbeita mér að textanum og nýtt hann til að koma til skila hefðbundnari söguboga en oft áður í mínum verkum. Í samsköpunarferlunum er strúktúrinn yfirleitt meira collage, eða samsett mynd, sem býr til allt aðra niðurstöðu og það getur verið frábært að vinna þannig. Að sama skapi getur verið flókið að steypa saman heildstæðri sögu í samsköpunarferlum, því vinnuaðferðin takmarkar í raun valdsvið hvers og eins. Að þessu sögðu kem ég líka með einhvern farangur úr samsköpunarleikhúsinu inn í Nýtt eldhús eftir máli. Í verkinu eru atriði sem brjóta upp söguna, brjóta upp það sem áhorfandinn hélt að væri veruleiki verksins, þannig að hann getur ekki alltaf verið viss um hvað er að gerast hverju sinni.
Sem sviðslistamaður hefur þú gjarnan fengist við sviðsetningar á sjálfum þér, eða einskonar hliðarsjálfi af þér, í sýningum þar sem þú kemur fram bæði sem höfundur og flytjandi. Nú hefur þú stigið af sviðinu og sest í leikskáldastólinn. Hvernig upplifir þú þetta nýja hlutverk?
Mér hefur liðið frá upphafi eins og ég geti treyst hinu listafólkinu algjörlega. Bæði eru leikararnir frábærir og geta leikið þetta verk miklu betur en ég, og svo kveikti Björn leikstjóri strax á verkinu. Hann hefur sýnt því mikinn og einlægan áhuga frá því að hann kom að því fyrst á Gula dreglinum, og ég var mjög ánægður með að hann var valinn til að leikstýra því. Hann er mjög flinkur í að draga fram upplýsingar úr textanum fyrir leikarana og jafnvel höfundinn sjálfan. Mér hefur fundist þetta mjög eðlilegt samband, að höfundurinn sé í virku samtali við leikhópinn, og endurskoði textann út frá því sem gerist í æfingarýminu. Það held ég að hjálpi bæði leikskáldinu og leikhópnum.
Einmitt, þú hefur fengið að sitja æfingar og taka þátt í ferlinu, sem er ekki alltaf raunin fyrir höfunda.
Ég hef ekki verið rekinn út ennþá. Ég er alltaf að stinga upp á að ég mæti minna, en það virðist ekki vera áríðandi fyrir leikhópinn að losna við mig. Mér finnst oft ágætt að halda mig til hlés og hlusta á hvernig þau túlka textann áður en ég segi hvernig ég sá þetta fyrir mér. Fyrst og fremst hef ég notið þess að fylgjast með og heyra textann minn fluttan af frábærum leikurum, ég hef hangið svona mikið í æfingarýminu af því að mér finnst svo gaman að vera þar.

Þeir sem þekkja til verka þinna eru farnir að þekkja persónuna Friðgeir úr útvarpsleikritum þínum og leiksýningum Kriðpleirs. Innan sviðslistasamfélagsins heyrast gjarnan lýsingar á borð við að eitthvað sé ,,Friðgeirslegt.“ Nú er persónan Friðgeir ekki á sviðinu. En leynist hann einhvers staðar í verkinu?
Já, alveg örugglega. Sem höfundur er maður alltaf á einhvern hátt að fjalla um sig sjálfan, þó að þetta sé auðvitað ekki verk um mig, mitt hjónaband eða mína kynóra. En ég sæki það sem gerist að einhverju leyti í eigin reynslu þó að sumt af því sem gerist í verkinu hafi aldrei komið fyrri mig. Það byggist á mínum hugsunum, mínum órum, því sem ég hræðist, þeirri persónu sem ég vil vera og þeirri persónu sem ég vil alls ekki vera. Við Daníel, aðalpersóna verksins, eigum það sameiginlegt að vera karlmenn á miðjum aldri sem hafa látið sig dreyma um að eignast nýtt eldhús. En að sama skapi er ég að nota þessa persónu og þennan heim til að prófa hluti sem koma mér í sjálfu sér ekkert við. Sem einhvers konar könnun á hugmyndum um þessa manngerð, um karlmennskuna á okkar tímum og um mennskuna yfirleitt, óháð kyni.
Hvað er ,,hið friðgeirska“ í þínum huga, skilur þú hvað fólk á við þegar það talar um þetta?
Já, það væri samt fróðlegt að gera einhverja samantekt á því hvað það er í raun og veru. En jú, það er þetta brútal hversdagslega, kaldhæðið en samt pínu existensíalískt og kvíðaþrungið og þunglyndislegt ástand. Eða hvað heldur þú?
Ég myndi taka undir þetta. En það má ekki gleyma húmornum.
Já einmitt. Ég er oft að reyna að skrifa húmorinn út úr verkum en síðan sé ég að það gengur ekkert. Fólki finnst ég bara fyndinn og asnalegur sama hvað ég geri. Og það er allt í lagi, ég fagna því.
Að lokum liggur vel við að spyrja: Getur draumaeldhúsið breytt lífi þínu?
Já, það getur breytt lífi þínu, en maður verður að stilla væntingunum í hóf. Það er miklu betra að snerta borðplötu úr steini en einhverjum spón með filmu sem á að líta út eins og steinn. Stutta svarið er já, en nýtt eldhús eitt og sér gerir mann ekki hamingjusaman ef allt annað er í rugli. Maður þarf að kunna að taka á móti hamingjunni sjálfur.
Melkorka Gunborg Briansdóttir tók viðtalið
Nánar um sýninguna