27. Okt. 2026

Þjóðleikhúsið auglýsir eftir nýjum íslenskum leikverkum


Þjóðleikhúsið  kallar nú sérstaklega eftir hugmyndum að nýjum íslenskum verkum með gamansömu ívafi, eftir einn eða fleiri höfunda, fyrir 4-8 leikara, sem hentað geta til sýninga á Stóra sviði leikhússins eða í Kassanum.
 

Höfundar skila inn lýsingu á verkinu (400-800 orð), auk sýnishorns af leiktexta ef hann liggur fyrir (3-5 bls.). Í lýsingu á leikverki skal koma fram persónufjöldi og stutt lýsing á persónum, atburðarás í megindráttum og ætlunarverk höfunda(r). Stutt ferilskrá höfunda skal fylgja. Hugmyndirnar skulu berast ekki síðar en mánudaginn 16. nóvember 2026. 

 

Senda inn hugmynd

Valdar verða nokkrar hugmyndir til áframhaldandi skoðunar, með það fyrir augum að ein eða fleiri hugmyndir eigi möguleika á áframhaldandi þróun innan leikhússins. Verði verk valið til uppsetningar fara greiðslur fram í samræmi við gildandi samning leikhússins við RSÍ.

Nánari upplýsingar: leikritun@leikhusid.is.

Þjóðleikhúsið tekur ávallt fagnandi á móti nýjum handritum og hugmyndum, sjá hér: Höfundastarf | Þjóðleikhúsið 

Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími