Undir sömu stjörnu lýkur ferð sinni um landið í uppseldu Þjóðleikhúsi

Opnunarviðburður nýrrar Óperu hefur farið frá Akureyri til Eskifjarðar, Reykjanesbæjar og Skálholts – lokasýningin er á Stóra sviðinu sunnudagskvöldið 15. nóvember. Uppselt er á viðburðinn.
Undir sömu stjörnu, formlegur opnunarviðburður nýrrar Óperu, lýkur ferð sinni um landið á morgun, sunnudaginn 15. nóvember kl. 20:00, á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Uppselt er á sýninguna. Þar með lýkur ferðalagi um fimm viðkomustaði sem hófst í Hofi á Akureyri 18. október.
Óperan er hluti af Þjóðleikhúsinu og er kynnt sem ópera þjóðarinnar allrar. Því var ákveðið að hefja starfið ekki í höfuðborginni heldur á ferð um landið, í samstarfi við heimafólk á hverjum stað.

Saga óperunnar – frá ítölskum hirðum til Íslands
Í Undir sömu stjörnu er saga óperunnar rakin frá ítölskum hirðum til Íslands og tengd íslenskri menningarsögu. Óperusöngvarar flytja þekkt verk eftir Monteverdi, Purcell, Händel, Mozart, Beethoven, Wagner, Bizet, Verdi og Dvořák, auk íslenskra verka eftir Jórunni Viðar, Jón Ásgeirsson og Gunnar Þórðarson. Leikarar Þjóðleikhússins leiða áhorfendur í gegnum söguna.
Titillinn vísar í skemmtilega tilviljun: sama ár og Jónas Hallgrímsson orti um stjörnuna yfir Hraundranga samdi Richard Wagner aríu sína til kvöldstjörnunnar.
Einsöngvarar eru Gunnar Björn Jónsson, Hildigunnur Einarsdóttir, Kristín Einarsdóttir Mäntylä og Kristján Ingi Jóhannesson. Leikarar eru Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Örn Árnason. Ólafur Egill Egilsson skrifar handrit og leikstýrir. Richard Schwennicke, tónlistarstjóri Óperunnar, er tónlistarstjóri viðburðarins. Eva Björg Harðardóttir hannar búninga og Árni Heimir Ingólfsson annaðist rannsóknir og ráðgjöf.

Á hverjum viðkomustað hafa hljómsveitir, einsöngvarar og kórar úr heimabyggð tekið þátt.
Samstarfsaðilar eru Menningarfélag Akureyrar, Menningarstofa Fjarðabyggðar, Sinfóníuhljómsveit Austurlands, Norðuróp, Tónlistarskóli Reykjanesbæjar og Sinfóníuhljómsveit Suðurlands.
„Ópera þjóðarinnar allrar“
„Við vildum að fólk um allt land fengi að kynnast Óperunni og taka þátt í starfinu frá fyrsta degi. Á hverjum stað hafa hljómsveitir og kórar úr heimabyggð staðið á sviðinu með okkur og betri byrjun er ekki hægt að hugsa sér. Að ljúka ferðinni fyrir fullu húsi í Þjóðleikhúsinu er okkur bæði gleðiefni og hvatning,“ segir Finnur Bjarnason óperustjóri.
