Undir sömu stjörnu
Ástarstjarna yfir Hraundranga og kvöldstjarna Wagners
Sama ár og þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson orti ljóð sitt um „Ástarstjörnu yfir Hraundranga“ samdi Richard Wagner óperuaríu til „Kvöldstjörnunnar“ sunnar í Evrópu. Skyldi það hafa verið sama tindrandi himinstjarnan sem kveikti hugmyndir beggja? Í þessari veglegu söngdagskrá er saga óperunnar rakin, allt frá hirðsölum Ítalíu að Íslands ströndum. Söngvarar Óperunnar flytja okkur nokkrar fegurstu perlur óperusögunnar en leikarar Þjóðleikhússins leiða áhorfendur í gegnum söguna. Fróðleik og skemmtun er hér fléttað saman á léttleikandi hátt.
Opnunarviðburður Óperunnar víða um land
Frumsýnt verður í Hofi á Akureyri en síðan farið víða um landið og að endingu sýnt í Þjóðleikhúsinu í Reykjavík.
Auk einsöngvara Óperunnar og leikara Þjóðleikhússins koma fram á opnunarviðburðinum í Hofi Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, kór Akureyrarkirkju og Kammerkór Norðurlands, en viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar.
Viðburðurinn verður einnig fluttur á Eskifirði í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Austurlands og menningarstofu Fjarðabyggðar, í Reykjanesbæ í samstarfi við Norðuróp og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og í Skálholti í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Suðurlands.
Sýningar
Hof á Akureyri, 18. október
Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði, 25. október
Hljómahöllin í Reykjanesbæ, 1. nóvember
Skálholtsdómkirkja, 8. nóvember
Þjóðleikhúsið, 15. nóvember.
Einsöngvarar Óperunnar
Leikarar
Listrænir stjórnendur
18. október – Akureyri
Hof kl. 16.00
Hljómsveitarstjóri: Richard Schwennicke
Hljómsveit: Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Kórstjórn: Þorvaldur Örn Davíðsson
Kórar: Kór Akureyrarkirkju, Kammerkór Norðurlands
Gestasöngvari: Jónína Björt Gunnarsdóttir, sópran
Í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar, framleiðandi: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, tónlistarstjóri MAk og forsvarsmaður SinfoniaNord.
Kaupa miða
25. október – Eskifjörður
Tónlistarmiðstöð Austurlands, Eskifjarðarkirkja kl. 15.00
Hljómsveitarstjórn: Richard Schwennicke
Hljómsveit: Sinfóníuhljómsveit Austurlands
Kórstjórn: Hlín Pétursdóttir Behrens
Kórar: Óperukór Austurlands, Kammerkór Norðurlands
Gestasöngvari: Hlín Pétursdóttir Behrens, sópran
Í samstarfi við Menningarstofu Fjarðabyggðar og Sinfóníuhljómsveit Austurlands.
Kaupa miða
1. nóvember – Reykjanesbær
Hljómahöllin kl. 16.00
Hljómsveitarstjóri og kórstjóri: Jóhann Smári Sævarsson
Hljómsveit: Hljómsveit Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
Kór: Hátíðarkór Norðuróps
Gestasöngvari: Martyna Patrycja Gesella, sópran
Í samstarfi við Norðuróp og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Kaupa miða
8. nóvember – Skálholt
Hljómsveitarstjóri og kórstjóri: Guðmundur Óli Gunnarsson
Hljómsveit: Sinfóníuhljómsveit Suðurlands
Kórar: Kammerkór Norðurlands, stjórnandi: Guðmundur Óli Gunnarsson. Skálholtskórinn, stjórnandi: Jón Bjarnason. Kammerkór Rangæinga, stjórnandi: Guðjón Halldór Óskarsson
Gestasöngvari: Gunnlaugur Bjarnason, baritón
Í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Suðurlands.
Kaupa miða
15. nóvember – Þjóðleikhúsið
Stóra sviðið kl. 20.00
Hljómsveitarstjóri og kórstjóri: Richard Schwennicke
Hljómsveit: Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Kór: Kór Óperunnar
Kaupa miða
Aðrir aðstandendur sýningarinnar
Efnisskrá
Fyrri hluti
- Monteverdi: L’Orfeo. Forleikur (Toccata). 1607.
- Monteverdi: L’Orfeo. „Dal mio permesso amato“, Ég er tónlistin sjálf (La Musica, forleikur / Prologo). 1607.
- Corteccia: „Vera mátt góður“. 16. öld.
- Purcell: Dido and Aeneas. „Thy Hand, Belinda … When I Am Laid in Earth“ (Dídó) / „With Drooping Wings“. 1689.
- Handel: Alcina. „Di’, cor mio“ (Alcina). 1735.
- Beethoven: Fidelio. „Mir ist so wunderbar“ (kvartett). 1805.
- Mozart: Töfraflautan. „Der Vogelfänger bin ich ja“, Við fuglasnörun fæst ég hér (Papageno). 1791.
- Mozart: Töfraflautan. „Dies Bildnis ist bezaubernd schön“, Hve myndin undrafögur er (Tamino). 1791.
- Mozart: Töfraflautan. „Das klinget so herrlich“, Hve klukkur blítt hringja / Gæti sérhver sveinninn knár (Pamina og Papageno). 1791.
- Wagner: Lohengrin. „Treulich geführt“ (Brúðarkórinn). 1850.
Hlé
Síðari hluti
- Bizet: Carmen. Forleikur. 1875.
- Bizet: Carmen. Habanera, „L’amour est un oiseau rebelle“ (Carmen). 1875.
- Wagner: Tannhäuser. „Wie Todesahnung … O du mein holder Abendstern“ (Wolfram). 1845.
- Verdi: Nabucco. „Va, pensiero“. 1841.
- Verdi: Rigoletto. „Bella figlia dell’amore“ (kvartett). 1851.
- Dvořák: Rusalka. „Měsíčku na nebi hlubokém“ (Rusalka). 1900.
- Jórunn Viðar: Snær konungur. „Nú er nýfallinn snjór“ (Fjalar og Fönn). 1944-45. Útsetning: Þórður Magnússon. 2026
- Jón Ásgeirsson: Þrymskviða. „Ek em Óðins sonur“ (Þór og kór). 1974.
- Gunnar Þórðarson: Ragnheiður. „Herra, þekkið þér ei ást“ (Ingibjörg). 2013.
Orfeo. Þýðing eftir Steinunni Arnbjörgu Stefánsdóttur.
Töfraflautan. Þýðing eftir Þorstein Gylfason, Gunnstein Ólafsson o.fl.
Meðfylgjandi mynd er úr Rigoletto í Þjóðleikhúsinu árið 1951. Stefán Íslandi (hertoginn af Mantua), Else Muhl (Gilda). Ljósm.: Sigurhans Vignir.
Óperur – hlustun og saga. Námskeið um sögu óperunnar
Endurmenntun Háskóla Íslands stendur fyrir námskeiði í samstarfi við Óperuna en námskeiðið er liður í opnunarviðburði Óperunnar sem hefst í Hofi á Akureyri 18. október.
Á þessu námskeiði verða þátttakendur leiddir með aðgengilegum hætti í gegnum sögu óperunnar, allt frá aldamótunum 1600 og fram á 20. öld. Sagt verður frá helstu tónskáldum á borð við Purcell, Mozart, Verdi, Wagner og Puccini auk annarra tónskálda sem mörg hver eru minna þekkt. Þá verða leikin tóndæmi úr þekktum óperum á borð við L‘Orfeo, Dido og Aneas, Júlíusi Sesari, Brúðkaupi Fígarós, La traviata, Valkyrkjunni, Evgeníj Ónegín, Madama Butterfly og fleirum og fjallað með skemmtilegum hætti um túlkun ópera í nútíð og fortíð.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér óperur. Ekki er gerð krafa um þekkingu á viðfangsefninu. Magnús Lyngdal Magnússon stýrir námskeiðinu.
Nánar um námskeið