/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Richard Schwennicke

Tónlistarstjóri óperunnar
/

Tónlistarstjóri Óperunnar

Richard Schwennicke er tónlistarstjóri Óperunnar.

Richard Schwennicke er hljómsveitarstjóri og píanóleikari með víðtæka reynslu frá leiðandi óperuhúsum í Evrópu. Undanfarin ár hefur hann starfað sem repetitör, söngþjálfari og hljómsveitarstjóri við Vínaróperuna, eitt virtasta óperuhús heims.

Hann lauk einleikaraprófi í píanóleik og síðar B.A.-prófi í hljómsveitastjórn með áherslu á óperu frá Hochschule für Musik, Theater und Medien Hannover. Hann starfaði sem aðstoðarkórstjóri og hljómsveitarstjóri í Kassel og Hannover, auk þess að gegna stöðu yfirmanns tónlistardeildar við Staatstheater Darmstadt, þar sem hann bar ábyrgð á skipulagi tónlistardeildar og undirbúningi söngvara.

Richard hefur sinnt fjölbreyttum verkefnum sem stjórnandi og hefur meðal annars stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann talar fjölda tungumála, þar á meðal íslensku, og hefur jafnframt aflað sér mikillar þekkingar í samstarfi við fremstu stjórnendur Evrópu á sviði óperu.

 

/
Opnunartími miðasölu

Þjóðleikhúsið er lokað í sumar.  Miðasalan á leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.  Við opnum aftur 8.ágúst.  Gleðilegt sumar.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími