/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Örn Árnason

Höfundur, Leikari
/

Örn Árnason lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands árið 1982. Hann er fastráðinn leikari við Þjóðleikhúsið en starfaði um árabil sjálfstætt sem leikari, framleiðandi, leikstjóri og höfundur. Í vetur leikur hann í opnunarsýningu Íslensku óperunnar, Undir sömu stjörnu, og í Afi-einn á báti, sem hann semur ásamt Agnesi Wild. Hann er jafnframt einn höfunda og leikara í Morð skulu standa – Harrý og Heimir, sem sýnt er í Kjallaranum. Harrý og Heimir hófst sem útvarpsefni en hefur orðið efni í leiksýningar og kvikmynd. Örn er einn af meðlimum Spaugstofunnar, sem setti svip sinn á íslenskt sjónvarp um áratugaskeið. Í Þjóðleikhúsinu lék hann nýlega í Jólagjöf Skruggu, Blómunum á þakinu, Jólaboðinu, Frosti, Sem á himni, Rómeó og Júlíu, Kardemommubænum, Nashyrningunum og einleik sínum Sjitt, ég er sextugur. Örn hefur haft umsjón með aðventustundum Þjóðleikhússins í samstarfi við velferðarsvið Reykjavíkur. Hann er þekktur fyrir hlutverk sitt sem Afi í sjónvarpi og hefur auk þess unnið við sjónvarpsþáttagerð um árabil, meðal annars við Með Afa, Imbakassann og Spaugstofuna. Hann hefur jafnframt talsett fjölda teiknimynda, verið einn af stofnendum Hljóðsetningar og komið fram í fjölmörgum kvikmyndum og sjónvarpsverkefnum. Hann lék aðalhlutverk í kvikmyndinni Víkinni.

 

Meira um feril:

Í Þjóðleikhúsinu hefur Örn leikið fjölmörg eftirminnileg hlutverk eins og Lilla í Dýrunum í Hálsaskógi, Jónatan, Jesper og Kasper í Kardemommubænum, Max í Hallæristenórnum, Leikarann í Gamansama harmleiknum og Geir Vídalín í Gleðispilinu. Hann lék Bangsapabba í Dýrunum í Hálsaskógi og ýmis hlutverk í Klaufum og kóngsdætrum.

Meðal nýlegra verkefna hans hér eru Shakespeare verður ástfanginn, Útsending, Ronja ræningjadóttir, Slá í gegn, afmælissýning Spaugstofunnar Yfir til þín – Spaugstofan 2015 (þar sem hann lék og var einn handritshöfunda), Umhverfis jörðina á 80 dögum, Óvitar, Spamalot, Dýrin í Hálsaskógi, Tveggja þjónn, Ballið á Bessastöðum og Bjart með köflum.

Meðal annara verkefna var Harry og Heimir í Borgarleikhúsinu sem hann samdi og lék í ásamt Sigurði Sigurjónssyni og Karli Ágústi Úlfssyni.

Örn hefur talsett fjölda teiknimynda bæði fyrir sjónvarp og kvikmyndahús og var einn stofnenda talsetningarfyrirtækisins Hljóðsetning.

Örn hefur unnið við sjónvarpsþáttagerð um margra ára skeið og má þar nefna þættina um Afa, Imbakassann og Spaugstofuna.

Örn gaf út plötuna Afi á sjóræningjaslóðum fyrir nokkrum árum og hefur sungið inn á nokkrar hljómplötur.

Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími