Aðventuvagninn

Aðventuvagn Þjóðleikhússins kemur með jólin til þín
Sýningum lokið
Listrænn stjórnandi
Örn Árnason
/
Farandleikhópur Þjóðleikhússins ferðast með skemmtidagskrá í desember

Þjóðleikhúsið bryddar upp á ýmsum skemmtilegum nýjum verkefnum á meðan sýningarhald liggur niðri vegna kórónuveirufaraldursins, til að gleðja landsmenn og stytta biðina þar til leikhúsið getur opnað á ný. Eitt þessara verkefna er „Samt koma jólin“, aðventuvagn Þjóðleikhússins sem ferðast um og færir fólki jólaandann.

Heimsótt eru dvalarheimili, heimili eldri borgara og aðrir staðir þar sem fólk er innilokað vegna kórónuveirufaraldursins

Hópur listamanna Þjóðleikhússins keyrir um á sér útbúnum bíl og heimsækir staði þar sem fólk býr við einangrun vegna faraldursins. Fyrir utan húsin er flutt tuttugu mínútna skemmtidagskrá sem yljar og hlýjar á erfiðum tímum. Sungin eru jólalög úr ýmsum áttum, flutt eru jólakvæði og stuttur leikþáttur. Dagskrárinnar má njóta utan húss, á svölum og úr gluggum, en henni verður jafnframt streymt fyrir þá sem ekki geta komið út, og geta þeir þá notið hennar af skjám innan dyra um leið og hún fer fram.

Leikhúsbíllinn heimsækir meðal annars dvalarheimili, hjúkrunarheimili, þjónustuíbúðir og félagsmiðstöðvar aldraðra. Meðal þeirra staða sem þegar hafa þegið boð um heimsókn eru Eir, Hrafnista í Hafnarfirði, dvalarheimilið við Norðurbrún, Seltjörn á Seltjarnarnesi, Seljahlíð í Breiðholti, Skógarbær í Árskógum, Hamrar í Mosfellsbæ, Sléttan, Droplaugarstaðir, Borgir í Spönginni og Gerðuberg. Velkomið er að senda óskir um heimsókn á netfangið gudmundure@leikhusid.is og Þjóðleikhúsið reynir eftir föngum að verða við þeim. Stálsmiðjan-Framtak og Jón Snorrason bílstjóri leggja Þjóðleikhúsinu lið við að flytja jólaskemmtunina á milli staða.

Leikarar

Umsjón

Listrænn stjórnandi
Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími