Leikari
Bjarni leikur í Kardemommubænum og Framúrskarandi vinkonu í Þjóðleikhúsinu leikárið 2021-2022, auk þess sem hann leikur í samstarfsverkefnunum Sjálfshjálparsöngleik Viggó og Víólettu og Góðan daginn, faggi sem sýnd eru í Kjallaranum.
Bjarni lauk leikaranámi með BFA gráðu frá sviðslistadeild Listaháskóla Íslands 2007. Bjarni er einnig með margra ára söngnám að baki, meðal annars frá Söngskólanum í Reykjavík og Complete Vocal Institute í Kaupmannahöfn. Árið 2015 lauk hann MA gráðu í listkennslu frá LHÍ og BA gráðu í ensku frá Háskóla Íslands 2013.
Bjarni hefur komið víða við á sínum ferli. Hann hefur leikið hjá Leikfélagi Akureyrar, í Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu þar sem hann hefur leikið síðustu ár. Hann hefur einnig verið afkastamikill hjá sjálfstæðum leikhópum og hefur leikið í klassískum og nýjum verkum. Þar má nefna Jim í Glerdýrunum eftir Tennessee Williams og Rándýr (hvort tveggja á vegum Fátæka leikhússins), Fyrirlestur um eitthvað fallegt (á vegum Smartílab) og tveimur verkefnum leikhópsins Stertabendu: Stertabenda og Insomnia. Þá hefur hann verið hluti af sýningarhóp Improv Ísland frá upphafi.
Bjarni hefur einnig leikið í sjónvarpsþáttum, auglýsingum og kvikmyndum, og má þar helst nefna Hæ Gosi, Áramótaskaupið, Stellu Blómkvist, Mannasiði og kvikmyndina Þrot.
Þá hefur hann mikla reynslu af að koma fram sem söngvari, á skemmtunum og sem veislustjóri, ýmist sem hann sjálfur eða sem annar hluti söngleikjadúósins Viggó og Víólettu. Hann hefur sungið á tónleikaröðum og tónleikum sérstaklega tileinkuðum söngleikjum og leikhústónlist, meðal annars með Sinfóníuhljómsveit Norðulands.
www.facebook.com/bjarniactor
www.instagram.com/bjarni.snaebjornsson
Heimasíða: www.bjarnisnae.com