Harrý og Heimir - Morð skulu standa

Harrý og Heimir – Morð skulu standa

Ég er að spögulera …
SVIÐ
Kjallarinn
FRUMSÝNING
18. apríl
110 mínútur með hléi

Harrý og Heimir gefa ekkert eftir – og slá í gegn í Kjallaranum!

Nýjasta sýningin um Harrý og Heimi sló sannarlega í gegn í Leikhúskjallaranum á síðasta leikári, með troðfullum sýningum. Ekki missa af sýningum haustsins!

Það var seint um kvöld. Afar seint um kvöld. Reyndar svo seint að það var orðið snemma morguns. Harrý Rögnvalds einkaspæjari sat á skrifstofu sinni ásamt Heimi Schnitzel, hundtryggum aðstoðarmanni sínum. (Voff voff voff). Þetta var reyndar ekki í fyrsta sinn sem Harrý og Heimir sátu saman með brakandi heilasellur.

„Getur verið að við verðum að leysa glæpamál í Þjóðleikhúskjallaranum allan næsta vetur?“ spurði Heimir.

„Það gæti hugsast, það fer eftir ýmsu,“ svaraði Harrý.

„Ertu ekki að meina að það gæti spögulerast?“

„Þegiðu, Heimir.“

„Alveg vissi ég að þú myndir segja þetta, Harrý,“ sagði Heimir.

Hinir ástsælu Harrý og Heimir snúa aftur, stútfullir af grunsemdum!

Harrý og Heimir eiga að baki fjölda sprenghlægilegra sakamálaleikrita í útvarpi, geysivinsælu leiksýninguna Með öðrum morðum og kvikmyndina Morð eru til alls fyrst. Nú er Leikhúskjallarinn, með alla sína reykmettuðu skugga og skúmaskot, orðinn vettvangur æsilegra rannsókna þeirra.

Leikarar, spuni og hugmyndavinna: Karl Ágúst Úlfsson, Sigurður Sigurjónsson, Örn Árnason. Handrit: Karl Ágúst Úlfsson. Leikstjórn: Þröstur Leó Gunnarsson.

Harrý og Heimir í samstarfi við Þjóðleikhúsið.

 

Leikarar

Höfundar

Handrit, höfundur, spuni og hugmyndavinna
Höfundur, spuni og hugmyndavinna
Höfundur, spuni og hugmyndavinna

Harrý og Heimir í samstarfi við Þjóðleikhúsið.

Listrænir stjórnendur og aðstandendur

Aðstoð við framleiðslu
Hljóðmynd
Aðstoð við hljóðmynd
Yfirumsjón búninga

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími