Högg

Högg

eftir James Graham
byggt á bók Jacobs Dunne, Right from Wrong
SVIÐ
Stóra Sviðið
Frumsýning
16.10.2026
Verð
7.950 kr.
Lengd
2.40 eitt hlé

Margverðlaunað, kraftmikið og einstaklega áhrifamikið nýtt leikrit sem á brýnt erindi

Högg er meistaralega skrifað glænýtt leikrit sem hefur hlotið einstakar viðtökur, meðal annars á West End og á Broadway, eftir hið margverðlaunaða breska leikskáld James Graham. Verkið er byggt á sannri sögu, frásögn ungs manns, Jacobs Dunne sem ólst upp í harkalegu umhverfi í Nottingham í Bretlandi.

Líf hins 19 ára gamla Jacobs snýst um djamm, hasar og spennu. Eitt örlagaríkt laugardagskvöld blandar hann sér í ágreining í miðbænum og kýlir ókunnugan ungan mann með skelfilegum afleiðingum. Hann er dæmdur í fangelsi fyrir að hafa orðið manni að bana og þegar hann er látinn laus blasir fátt annað við en gamla lífernið. Þegar Joan og David, foreldrar unga mannsins sem dó, óska eftir því að fá að komast í samband við Jacob til að spyrja hann nokkurra spurninga byrjar líf hans að taka breytingum sem engan hefði getað órað fyrir

Sönn saga um átakanlega lífsreynslu og von í myrkri

 

Eitt augnablik sem breytir öllu

Högg er einstaklega áhrifamikið leikrit, persónuleg saga sem speglar um leið nútímasamfélagið á óvæginn hátt. Verk um blindu, mennsku og möguleikann á breyta lífi sínu til góðs. Verkið hefur hreyft rækilega við áhorfendum og vakið mikilvægar umræður víða.

Verkið er tileinkað James Hodgkinson og öllum sem hafa látið lífið eftir að hafa verið slegnir einu höggi. Það er byggt á sannri sögu en sumar persónur og atburðir lúta lögmálum skáldskaparins.

Umræður eftir 6. sýningu

Boðið verður upp á umræður með þátttöku listafólks eftir 6. sýningu. Joan Scourfield tekur þátt í umræðum. Vinsamlega athugið að umræðurnar fara fram á ensku.

Viðvaranir

Viðvaranir vegna umfjöllunarefnis og notkunar tækni.

Viðvaranir

 

 

Tileinkun

„Högg er tileinkað minningu James Hodgkinson og allra fórnarlamba eins hnefahöggs. James helgaði líf sitt því að hjálpa og líkna öðrum. Þau 28 ár sem hann lifði voru skýr vitnisburður um lífsviðhorf hans og gildismat – hann var sjálfboðaliði, leiðbeinandi, sérmenntaður bráðatæknir. Hann var elskaður af fjölskyldu sinni og vinum og endurgalt þá ást. Leikhúsið getur og á að vera staður sem skapar samkennd, og eykur skilning. Von okkar er sú að heiðra minningu James og draga upp mynd af þeim manni sem hann var.”

James Graham

Ráðgjöf og aðstoð

Ef efni leiksýningarinnar Högg vekur upp flóknar spurningar eða erfiðar tilfinningar eða minningar hjá þér og þú vilt leita stuðnings eða ráðgjafar bjóða m.a. eftirfarandi aðilar upp á aðstoð:

  • 112 Neyðarlínan er opin allan sólarhringinn. Sími: 112.
  • Uppbyggileg réttvísi. Domus Mentis Geðheilsustöð. Þar starfa sérfræðingar í uppbyggilegri réttvísi. https://www.dmg.is.
  • Bjarkarhlíð Þjónustumiðstöð sem veitir þolendum ofbeldis ráðgjöf, stuðning og upplýsingar á einum stað. https://bjarkarhlid.is
  • Sorgarmiðstöð Veitir fræðslu, ráðgjöf og stuðning fyrir fólk sem glímir við sorg og missi. https://sorgarmidstod.is/
  • SÁÁ Veitir meðferð, ráðgjöf og stuðning fyrir fólk með áfengis-, vímuefna- og fíknivanda. https://saa.is/
  • Pieta Veitir meðferð og stuðning fyrir fólk með sjálfsvígshugsanir, sjálfsskaða og aðstandendur þeirra. https://pieta.is/
  • Bergið Headspace Lágþröskulda ráðgjafar- og stuðningssetur fyrir ungt fólk á aldrinum 12-25 ára. https://www.bergid.is/
  • Birta Landssamtök sem veita foreldrum og aðstandendum stuðning eftir skyndilegt fráfall barns eða ungmennis. birtalandssamtok
  • Ljónshjarta Samtök fyrir yngra fólk sem misst hefur maka og börn þeirra. Veita jafningjastuðning og fræðslu. https://ljonshjarta.is
  • Bryndísarhlíð Sérhæfð áfalla- og ofbeldismóttaka Landspítala – öruggur staður þar sem börn og ungmenni geta leitað sér aðstoðar. https://bryndisarhlid.is
  • Púlsinn Bráða- og viðbragðsteymi fyrir börn og unglinga sem beita eða hóta ofbeldi og fjölskyldur þeirra. https://reykjavik.is/pulsinn
  • Barnaheill Frjáls félagasamtök sem vinna að vernd og eflingu réttinda barna með fræðslu, forvörnum og hagsmunagæslu. https://barnaheill.is/
  • Barna- og fjölskyldustofa Opinber stofnun sem styður og samhæfir þjónustu í þágu barna, fjölskyldna og barnaverndar um land allt. https://www.bofs.is/
  • Barnahús Veitir þjónustu, greiningu og meðferð fyrir börn sem grunur er um að hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi, heimilisofbeldi eða öðru ofbeldi. https://island.is/s/bofs/barnahus
  • Heimili og skóli Foreldrasamtök sem efla samstarf heimila og skóla og vinna að velferð barna og ungmenna. heimiliogskoli.is
  • Miðstöð umboðsmanns barna Styður réttindi barna og ungmenna og leggur áherslu á að rödd þeirra heyrist í málum sem þau varða. barn.is
  • Flotinn – flakkandi félagsmiðstöð Vettvangsteymi sem sinnir forvarnar- og stuðningsstarfi meðal unglinga utan hefðbundins opnunartíma félagsmiðstöðva.
    https://www.instagram.com/flotinn/?hl=en
  • SAMAN-hópurinn Forvarnahópur sem hvetur foreldra til virkrar þátttöku í lífi barna sinna og styður lýðheilsu og vímuvarnir. https://www.samanhopurinn.is/
  • Geðhjálp Hagsmunasamtök sem veita ráðgjöf, standa vörð um réttindi fólks með geðrænan vanda og vinna að eflingu geðheilsu. https://gedhjalp.is/
  • Heimilisfriður Meðferðar- og þekkingarmiðstöð sem hjálpar einstaklingum að glíma við ofbeldi í nánum samböndum. https://heimilisfridur.is/
  • Stígamót Ráðgjafar- og fræðslumiðstöð sem veitir þolendum kynferðisofbeldis stuðning og ráðgjöf. https://stigamot.is/
  • Kvennaathvarfið Veitir konum og börnum sem búa við heimilisofbeldi öruggt skjól, ráðgjöf og stuðning. https://kvennaathvarf.is/
  • Rauði krossinn Mannúðarsamtök sem veita neyðaraðstoð, félagslegan stuðning og fjölbreytta hjálparþjónustu innanlands og erlendis. https://www.raudikrossinn.is/
  • FAFF / Bjargráð Veitir faglega aðstoð fjölskyldum fanga, aðstandendum og börnum. www.faff.is
  • Afstaða Hagsmunasamtök sem styðja fanga og aðstandendur þeirra og vinna að betri endurhæfingu og farsælli endurkomu í samfélagið. https://www.afstada.is/
  • Vernd fangahjálp Styður fanga og fyrrverandi fanga við endurkomu út í samfélagið og rekur áfangaheimili. https://www.vernd.is
  • SÁTT – félag um sáttamiðlun Fagfélag sem kynnir og eflir sáttamiðlun sem leið til að leysa ágreining á uppbyggilegan hátt. https://www.satt.is/
  • Virknihús Endurhæfingarúrræði Reykjavíkurborgar sem styður fólk til aukinnar virkni, náms, atvinnuþátttöku og bættra lífsgæða. https://reykjavik.is/virkni-og-endurhaefing/virknihus

 

 

Myndbönd

Stikla
Jakob van Oousterhout

Erlend samtök sem starfa m.a. á sviði uppbyggilegrar réttvísi:

  • Remedi Bresk góðgerðarsamtök sem bjóða upp á sáttamiðlun og uppbyggilega réttvísi (restorative justice) milli brotaþola, gerenda og annarra sem verða fyrir áhrifum af brotum. remediuk.org
  • Calm Mediation Veitir sáttamiðlun og aðra lausnamiðaða þjónustu til að hjálpa einstaklingum, fjölskyldum og samfélögum að leysa ágreining á uppbyggilegan hátt. calmmediation.org
  • Restorative Justice Council Sjálfstæð landsamtök sem setja fagleg viðmið, styðja starfsfólk og efla þróun uppbyggilegrar réttvísi í Bretlandi. restorativejustice.org.uk
  • Victim Support Veitir brotaþolum upplýsingar, stuðning og ráðgjöf, þar á meðal fræðslu um rétt þeirra til að taka þátt í uppbyggilegri réttvísi. victimsupport.org.uk/help-and-support/your-rights/restorative-justice/
  • Why Me? Landsamtök sem vinna að því að auka aðgengi að uppbyggilegri réttvísi og fræða almenning um ávinning hennar fyrir brotaþola, gerendur og samfélagið. why-me.org
  • Common Ground Justice Project Bresk hagsmunasamtök sem vinna að umbótum í refsivörslukerfinu með rannsóknum, almennri umræðu og stefnumótun, og leggja sérstaka áherslu á að auka aðgengi brotaþola að uppbyggilegri réttvísi. commongroundjustice.uk
  • Right From Wrong Fræðslu- og þjálfunarsamtök stofnuð af Jacob Dunne sem kenna uppbyggilega nálgun við ágreining, ábyrgð og samskipti í fangelsum, skólum og vinnustöðum með áherslu á að fyrirbyggja ofbeldi og hjálpa fólki að bæta sambönd og takast á við afleiðingar gjörða sinna. rightfromwrong.co.uk

Vefsíða Jacobs Dunne jacobdunne.co.uk

The Telegraph, WhatsOnStage, The Times

Umræður og textun á sýningum Þjóðleikhússins

Í kjölfar 6. sýningu verka á Stóra sviðinu verður áfram boðið upp á viðræður með leikurum og listrænum stjórnendum þar sem áhorfendum gefst færi á að fræðast og kafa dýpra.

Þriðja leikárið í röð verður boðið upp á textun á ensku og íslensku á 7. sýningu valinna verka. Þjóðleikhúsið leggur aukna áherslu á að mæta ólíkum þörfum leikhúsgesta. Textar birtast á skjám sem komið er fyrir til hliðar við sviðið eða fyrir ofan það, eftir því sem við á hverju sinni. Miðasala veitir upplýsingar um hentugustu sætin hverju sinni fyrir þá sem vilja nýta sér textun.

Nánar um textun

Leikarar

Höfundar og þýðandi

Höfundur leikrits
Höfundar bókarinnar Right from Wrong

Listrænir stjórnendur

Sýningarréttur: Curtis Brown.

Heiti leikrits á frummáli: Punch.

 

Framleiðslu- og sýningarstjórn

Sýningarstjórn
Framleiðslustjórn

Aðrir aðstandendur

Aðstoðarmaður leikstjóra
Starfsnemi - Nord universitet í Noregi
Deildarstjóri sviðs- og ljósadeildar
Yfirumsjón búninga
Yfirumsjón leikgerva
Teymisstjóri leikmyndagerðar
Yfirsmiður
Yfirumsjón með leikmyndarmálun og áferð
Yfirumsjón á sviði
Yfirumsjón leikmuna
Samsetning tæknikeyrslu

Starfsfólk á sýningum

Annað starfsfólk við sýninguna

Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími