Kristján Þórður Hrafnsson er skáld, rithöfundur, þýðandi og bókmenntafræðingur. Hann nam bókmenntir við The New School for Social Research í New York 1988-1989 og lauk B.A.–prófi í almennri bókmenntafræði frá HÍ 1992. Hann lauk Maîtrise-prófi í frönskum bókmenntum frá Université de Paris-Sorbonne – Paris IV 1995. Hann hefur fengist við öll helstu form skáldskapar og sent frá sér fjölda frumsaminna skáldverka, ljóðabækur, skáldsögur, leikrit og kvikmyndahandrit. Auk þess hefur hann þýtt yfir tuttugu leikrit úr ensku og frönsku, allt frá Shakespeare til samtímahöfunda, sem hafa verið sett á svið í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Íslensku óperunni og hjá sjálfstæðum leikhópum, eða flutt í útvarpi. Meðfram vinnu við skáldverk sín og þýðingar hefur hann skrifað um bókmenntir í blöð, tímarit og safnrit, og annast ritstjórn og útgáfu bóka. Hann hefur unnið til verðlauna fyrir skáldverk sín og tvisvar verið tilnefndur til Grímunnar sem leikskáld ársins.
Starfsfólk Þjóðleikhússins