13. Ágú. 2026

Högg – Glænýtt verðlaunaverk sem lætur engan ósnortinn


Högg, eða Punch, er glænýtt og áhrifaríkt verk eftir James Graham. Verkið byggir á bók Jacob Dunne (Right from wrong) sem hann skrifaði um eigin reynslu í kjölfar þess að hafa banað öðrum manni með einu höggi eitt örlagaríkt kvöld þegar hann fer út á lífið með félögum sínum. Verkið snýst fyrst og fremst um afleiðingarnar fyrir aðstandendur, bæði gerandans og hins látna. Foreldrar mannsins sem fyrir högginu verður setja sig í samband við Jacob í viðleitni sinni til þess að finna einhverja sátt eða fá svar við einhverjum þeirra ótal spurninga sem brenna á þeim eftir sonarmissinn. Samskipti Jacobs við foreldrana hreyfa við honum á óvæntan hátt og hann horfist af meiri þunga í augu við gjörðir sínar og reynir í kjölfarið að bæta fyrir þær með einhverjum hætti. Jacob hefur farið víða; haldið fyrirlestra og rætt við ungmenni um afleiðingar ofbeldis og sagt sína sögu. Vonir standa til þess að hann muni koma til landsins í tengslum við frumsýninguna.

Sjá nánar

Punch var frumsýnt í Nottingham 2024 en hélt svo göngu sinni áfram í Old Vic og hefur algerlega slegið í gegn. Það fluttist svo á West End og Broadway, þar sem það fékk einróma lof og sópaði að sér verðlaunum, m.a. sem leikrit ársins.  Þjóðleikhúsið er fyrsta leikhúsið sem fær heimild til uppsetningar verksins í kjölfar frumuppfærslunnar.

Högg verður frumsýnt á Stóra sviðinu í október. Leikstjóri: Magnús Geir Þórðarson en leikarar eru Jakob van Oosterhout, Unnus Ösp Stefánsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Ebba Katrín Finnsdóttir, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Hallgrímur Ólafsson, Jónmundur Grétarsson, Kristinn Óli. S. Haraldsson, Selma Rán Lima og Sigurbjartur Sturla Atlason.

Þýðing:

Kristján Þórður Hrafnsson

Leikmynd:

Ilmur Stefánsdóttir

Búningar:

Filippía I. Elísdóttir

Lýsing:

Björn Bergsteinn Guðmundsson

Sviðshreyfingar:

Conor Doyle

Tónlist:

Gísli Galdur Þorgeirsson

Hljóðhönnun:

Aron Þór Arnarsson

Opnunartími miðasölu

Þjóðleikhúsið er lokað í sumar.  Miðasalan á leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.  Við opnum aftur 8.ágúst.  Gleðilegt sumar.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími