19. Ágú. 2026

Nýtt og glæsilegt leikár, 2026 – 2027, er hafið!

Haustið nálgast og Þjóðleikhúsið lifnar við. Það er einstaklega spennandi leikár framundan sem við erum gríðarlega spennt fyrir. Í kjölfar aðsóknarmesta leikárs í sögu Þjóðleikhússins erum við vongóð um að áhorfendur flykkist í leikhúsið og slökkvi á tímanum, hversdeginum, áreitinu og skrollinu.

Tvö ný íslensk verk verða á stóra sviðinu, Hetjur hafsins, eftir Ragnar Bragason og Rými fyrir ást eftir Tyrfing Tyrfingsson. Taktu lagið, Lóa sem leikhúsunnendur muna vafalaust eftir í magnaðri sviðsetningu árið 1994 verður einnig á Stóra sviðinu. Fyrsta frumsýning ársins á Stóra sviðinu er hins vegar Högg. Magnað nýtt verk um átakanlega lífsreynslu og von í myrkri, sem hefur sópað að sér verðlaunum.


Sjá allar sýningar

Ormstunga og Lína Langsokkur halda áfram sigurgöngu sinni, líkt og Óresteia sem verður aftur sýnd í Kassanum á nýju ári. Þá er einnig komið að Nýju eldhúsi eftir máli eftir Friðgeir Einarsson auk þess sem sviðslistahópurinn Kviss búmm bang einsetur sér að opna umræðuna með nýju verki, Gagnkynhneigð.

Kaupa leikhúskort

Hin nýja Ópera fagnar sínu fyrsta starfsári með metnaðarfullri uppsetningu á Falstaff eftir Verdi, en þetta er jafnframt frumflutningur á óperu meistarans á Íslandi. Opnunarviðburður Óperunnar verður í Hofi, en Undir sömu stjörnu er heitið á spennandi dagskrá sem verður flutt víða um land.
Kristín Þóra sýnir áfram Á rauðu ljósi og unglömbin Harrý og Heimir halda áfram að kitla hláturtaugarnar í Kjallaranum.


Einleikur Unnar Aspar, Salka – ástin og dauðinn verður á sínum stað í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Ný og spennandi boðssýning fyrir ungmenni, Laxness eins og hann leggur sig mun gera víðreist.
Afi, þessi eini sanni sem Örn Árnason kynnti fyrir landsmönnum fyrir 40 árum síðan verður með fallega sýningu á Litla sviðinu. Hreiðrið heldur áfram göngu sinni og svo má alls ekki gleyma Láru og Ljónsa sem heilla unga leikhúsgesti á aðventunni á Stóra sviðinu.

Kjallarinn mun iða af lífi allan næsta vetur. Auk fastagestanna Improv og Kjallarakabaretts verður boðið upp á nýjungar: Belonging er dagskrá á ensku þar sem skoplegu ljósi er brugðið á upplifun innflytjenda af Íslandi. Leikhúskonur 50+ tromma upp með nýja sýningu eftir Hlín Agnarsdóttur, Pissudúkkur. Raddbandið tekur upp þráðinn og reynir að redda jólunum í sýningunni Jólin á suðupunkti. Therapy, krassandi danskvöld þar sem leikstjórinn Benedict Andrews bregður sér í nýtt hlutverk og þeytir skífum í Kjallaranum valin kvöld undir heitinu DJ Benwah. Söngleikurinn Kabarett sem kom, sá og sigraði heldur áfram göngu sinni og fleira og fleira.

Kynntu þér leikárið og veldu þínar sýningar í leikhúskortið þitt núna!
Skipuleggðu stórkostlegan menningarvetur!

Góða skemmtun – sjáumst kát í haust.


Kaupa leikhúskort

Opnunartími miðasölu

Þjóðleikhúsið er lokað í sumar.  Miðasalan á leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.  Við opnum aftur 18.ágúst.  Gleðilegt sumar.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími