02. Nóv. 2026

Áhugaverðar og áhrifamiklar umræður með Joan Scourfield


Síðastliðið föstudagskvöld voru umræður að lokinni sýningu á Höggi með þátttöku listafólks og Joan Scourfield, móður James Hodgkinsson sem lést í Nottingham árið 2011 eftir að hafa verið sleginn einu höggi. Umræðurnar voru afar áhugaverðar og áhrifamiklar og fjöldi leikhúsgesta tók þátt. Það var Melkorka Tekla Ólafsdóttir sem stýrði umræðunum.
Kaupa miða

Leikritið Högg eða Punch eftir breska leikskáldið James Graham er eitt umtalaðasta breska leikrit undanfarinna ára. Verkið var upphaflega skrifað að beiðni Nottingham Playhouse og var frumsýnt þar í leikstjórn Adam Penford í maí árið 2024. Sýningin vakti strax gífurlega athygli og fékk frábærar viðtökur. Hún var endurfrumsýnd í Young Vic í London í mars árið 2025. Vegna góðs gengis sýningarinnar var hún flutt í Apollo Theatre á West End í september 2025. Adam Penford setti sýninguna upp með sama listræna teymi en nýjum leikhópi hjá Manhattan Theatre Club í Samuel J. Friedman Theatre á Broadway í New York haustið 2025.

Nýtt sýningatímabil verksins hefst í Nottingham árið 2027, og sýningin mun fara í leikferð um Bretland. Í undirbúningi er ný gerð af sýningunni, sérstaklega ætluð ungu skólafólki, auk þess sem unnið er að sjónvarpsaðlögun af verkinu. Þjóðleikhúsið er fyrsta leikhúsið sem fær heimild til uppsetningar verksins eftir uppfærslur Adams Penford í Bretlandi og Bandaríkjunum, en sýningar eru í undirbúningi víða. Högg hefur vakið miklar umræður um svokallaða uppbyggilega réttvísi sem hefur nú verið að ryðja sér til rúms á Íslandi.  

Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími