/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Ásta Jónína Arnardóttir

Ljósa- og myndbandshönnuður, Ljósamaður, Tæknistjórn á sýningum
/

Ásta Jónína Arnardóttir stundaði nám við Kvikmyndaskóla Íslands 2017-2018 og hefur starfað sem ljósahönnuður, myndbandshönnuður og tæknimanneskja við Þjóðleikhúsið frá árinu 2017. Í vetur hannar hún hér lýsingu fyrir Línu Langsokk og Gæðablóð og myndband fyrir Íbúð 10B. Hún hannaði hér lýsingu og myndband fyrir Storm, Ást Fedru, lýsingu fyrir Taktu flugið, beibí!, Eddu, Íslandsklukkuna og Fullorðin og myndband fyrir Eltum veðrið, Frost, Múttu Courage, Orð gegn orði, Nokkur augnablik um nótt og Þitt eigið leikrit II Tímaferðalag. Hún sá um lýsingu fyrir Ífígeníu í Ásbrú og Óbærilegan léttleika knattspyrnunnar í Tjarnarbíói. Hún starfar einnig sjálfstætt við kvikmyndatöku og klippingu, og hefur tekið fjölda stuttmynda sem hafa verið sýndar á hátíðum víða um heim og unnið til verðlauna. Hún hlaut Grímuverðlaunin fyrir lýsingu í Ást Fedru.

Opnunartími miðasölu yfir hátíðarnar
23.des 12:00 – 21:00
24.des 10:00-14:00
25.des LOKAÐ
26.des 16:00 – 19:00
27.des 12:00 – 19:00
28.des 12:00 – 19:00
29.des 14:00 – 18:00
30.des 14:00 – 19:00
31.des LOKAÐ
1.jan LOKAÐ

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími