Nokkur augnablik um nótt

Nokkur augnablik um nótt

Vita þínir nánustu hvernig þú lítur út – án allra filtera?
Höfundur
Adolf Smári Unnarsson
Leikstjóri
Ólafur Egill Egilsson
Lengd
2:15 eitt hlé

Fullkomið íslenskt sumarkvöld, fullkominn bústaður, fullkomið oumph á grillinu og öll nóttin er framundan…

Á dásamlegu sumarkvöldi uppi í bústað, yfir glóðheitu grillinu, kynnir Björk nýja kærastann fyrir Ragnhildi stóru systur og manninum hennar. Þær systurnar ólust upp á brotnu heimili en hafa farið ólíkar leiðir í lífinu. Ragnhildur stefnir óðfluga inn á þing og er gift fyrrverandi fótboltakappanum Magnúsi sem nú gerir það gott í fjárfestingum. Björk er alveg við það að meika það í músíkinni og er nýbúin að kynnast Óskari, sem er bara lowkey fínn gaur. Þetta verður örugglega alveg yndisleg og afslöppuð bústaðarferð. 

Nýtt og beinskeytt verk eftir ungt leikskáld

 

Ungt íslenskt leikskáld sendir frá sér magnað verk, beint úr íslenskum raunveruleika. Grátbroslegt og spennandi leikrit um fagfjárfesta og fótboltamenn, stuðningsfulltrúa, stjórnmálakonur og fleira gott fólk sem við þekkjum öll – eða ekki.

Þetta glænýja, kraftmikla verk er í senn vægðarlaus samtímaspegill og bráðfyndin en ógnvekjandi svipmynd af þeim sem eiga og þeim sem vilja, þeim sem sýnast og þeim sem eru. Þetta erum við – og þau.

Adolf Smári Unnarsson hefur á undanförnum árum getið sér gott orð sem rithöfundur, leikskáld og leikstjóri, en hann hlaut meðal annars þrjár Grímutilnefningar árið 2021 fyrir Ekkert er sorglegra en manneskjan.

Ólafur Egill Egilsson er í fremstu röð íslenskra leikhúslistamanna og er nú fastráðinn leikstjóri við Þjóðleikhúsið. Meðal fjölda sýninga sem hann hefur komið að eru Ásta, Karitas, Ör, Níu líf og Ellý.

Leikarar

Listrænir stjórnendur

Aðrir aðstandendur

Aðstoðarmaður leikstjóra
Sýningarstjórn og umsjón
Leikgervi, yfirumsjón
Teymisstjóri leikmyndaframleiðslu, smiður, málari
Búningadeild, yfirumsjón
Leikmunadeild, yfirumsjón
Hljóðdeild, yfirumsjón

Sérstakar þakkir: Siglingafélagið Ýmir og Hildur Hafstein.

Lagið Scandinavian Pain í sýningunni er eftir Aron Þór Arnarsson og Ebbu Katrínu Finnsdóttur. Texti: Ebba Katrín Finnsdóttir og Adolf Smári Unnarsson. Söngur: Ebba Katrín Finnsdóttir, Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Ólafur Egill Egilsson. Hljóðfæraleikur: Aron Þór Arnarsson, Aron Dagur Jóhannsson og Elvar Geir Sævarsson.

Önnur tónlist er eftir Aron Þór Arnarsson, fyrir utan brot úr lögunum Something (The Beatles), Love Tonight (Shouse), Vitskert Veröld (Einar Vilberg Hjartarson, Pétur Kristjáns), Apache (Incredible Bongo Band) og Keyra (Herra Hnetusmjör).

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími