Upphaf

Hvort þeirra á að stíga fyrsta skrefið?
Verð
6.650 kr.
Lengd
1.30 ekkert hlé
Svið
Kassinn
Fyndið, hlýtt og áleitið verk sem hitti áhorfendur beint í hjartastað á liðnu leikári

Einstaklega vel skrifað nýtt leikrit, fyndið og ljúfsárt, sem fékk frábærar viðtökur á liðnu leikári. Verkið fjallar um þrána eftir nánd og löngun til að eignast fjölskyldu, en jafnframt um óttann við skuldbindingar og það að tengjast öðrum of sterkum böndum.

Það er miðnætti. Síðustu gestirnir úr innflutningspartíinu hjá Guðrúnu eru nýfarnir með leigubíl. Allir nema einn, Daníel, sem flæktist inn í partíið af hálfgerðri tilviljun. Hann hikar. Á hann að láta sig hverfa líka, eða þiggja eitt glas enn? Við fylgjumst með tveimur manneskjum reyna að nálgast hvor aðra. Þau þreifa sig áfram, kanna hvað þau gætu átt sameiginlegt. Straumarnir á milli þeirra… gæti þetta orðið upphafið að einhverju? Einnar nætur ævintýri? Eða er eitthvað miklu meira í vændum?

Stundum óttast fólk ást jafn mikið og það þráir hana.

Leikritið var upphaflega frumsýnt í Breska þjóðleikhúsinu þar sem það hlaut einróma lof gagnrýnenda. Síðan hefur það verið sýnt við mikla hrifningu víða um heim.

Upphaf hitti íslenska áhorfendur í hjartastað þegar það var frumsýnt hér síðasta haust en eftir 15 uppseldar sýningar þurfti að stöðva sýningarhald vegna heimsfaraldursins. Það er kærkomið að hefja sýningar á ný á þessu hjartnæma verki.

Sýnt hjá Leikfélagi Akureyrar í mars.

Leikarar

Listrænir stjórnendur

Sýningarréttur

Nordiska ApS – Kaupmannahöfn.

Verkið heitir Beginning á frummálinu.

SKOÐA LEIKSKRÁ

Áður en þú kaupir stakan miða – mundu að besta verðið er í kortunum!
Áður en þú kaupir stakan miða – mundu að besta verðið er í kortunum!
Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími