23. Jún. 2020

Kristín Þóra og Hilmar Guðjónsson bætast í leikarahóp Þjóðleikhússins

Leikararnir Kristín Þóra Haraldsdóttir og Hilmar Guðjónsson hafa nú bæði gengið til liðs við Þjóðleikhúsið en bæði hafa þau hlotið mikið lof, Grímuverðlaun og aðrar viðurkenningar fyrir störf sín. Þau mun leika saman í verkinu Upphaf sem María Reyndal leikstýrir og verður frumsýnt 11. september. Verkið var frumsýnt í Breska þjóðleikhúsinu í London fyrir þremur árum og hlaut afar góðar viðtökur. Það gekk fyrir fullu húsi, var flutt yfir á West End og hefur síðan verið sviðsett víða um heim.

Kristín Þóra og Hilmar bætast því í hóp þeirra fjölmörgu leikara og listrænu stjórnenda sem hafa gengið til liðs við Þjóðleikhúsið á undanförnum vikum og mánuðum, en nú þegar hafa leikararnir og leikstjórarnir ÞorleifurArnarsson, Ólafur Egill og Unnur Ösp bæst í hópinn, auk þess sem lýsingahönnuðurinn Björn Bergsteinn er nú orðinn yfirljósahönnuður leikhússins. Þá er Ilmur Stánsdóttir fastráðinn leikmyndahöfundur hússins og Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir listrænn ráðunautur leikhússins. Þessar breytingar komu í kjölfar skipulagsbreytinga og annarra breytinga í starfsmannahópi Þjóðleikhússins.

Kristín Þóra Haraldsdóttir útskrifaðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2007 og síðan þá hefur hún tekið þátt í tugum leiksýninga ýmist hjá Leikfélagi Akureyrar, Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu. Af nýlegum sjónvarps- og kvikmyndaverkefnum má nefna þættina Fanga, Brot og Stellu Blomkvist og kvikmyndirnar Andið eðlilega og Lof mér að falla. Kristín Þóra hefur verið tilnefnd 6 sinnum til Grímunnar og 2 sinnum til Eddunar. Kristín Þóra hlaut Stefaníustjakann frá minningarsjóði frú Stefaníu Guðmundsdóttur árið 2014 og Grímuverðlaunin 2016 sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir hlutverk sitt í Auglýsingu ársins. Árið 2018 vann hún Edduna fyrir hlutverk sitt í Lof mér að falla. Auk þess hefur Kristín verið valin sem Shooting Star 2018 ásamt 10 öðrum efnilegum leikurum í Evrópu. Fyrir hlutverk sín í Andið Eðlilega og Lof mer að falla hefur hún fengið fjölda tilnefninga til Alþjóðlegra verðlauna.

Hilmar Guðjónsson útskrifaðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2010 og var þegar fastráðinn við Borgarleikhúsið. Eftir útskrift hafa hlutverkin verið ótalmörg. Hann hlaut grímuverðlaun fyrir hlutverk sitt í Rautt og nú í vor var hann tilnefndur til Grímuverðlauna fyrir Helgi Þór rofna. Meðal annarra verka sem hann hefur leikið í eru Fanný og Alexander, Ríkharður III, Mávurinn og Salka Valka. Þá hefur Hilmar farið með hlutverk í kvikmyndunum Bjarnfreðarson og Á annan veg og fékk hann tilnefningu til Edduverðlaunanna fyrir hlutverk sitt í myndinni. Í sjónvarpi hefur Hilmar tekið að sér hlutverk í sjónvarpsmyndinni Fiskar á þurru landi og svo þáttaröðunum Fólkið í blokkinni, Drekasvæðinu, Stellu Blomkvist og Venjulegu fólki auk hlutverka í Áramótaskaupum, Jólastundinni okkar og Ævari Vísindamanni. Þá hefur Hilmar leikið í fjölda stuttmynda, nú síðast Ráðabruggi Regínu. Haustið 2011 var Hilmar valinn í hóp Shooting Stars, ungra og efnilegra kvikmyndaleikara í Evrópu.

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími