Við tökum vel á móti þér í miðasölu leikhússins
Miðasala leikhússins á netinu er alltaf opin. Miðasala í leikhúsinu er opin virka daga kl. 14-18, um helgar kl. 12-18 og fram að sýningu sýningardaga.
Við svörum í símann alla virka daga frá klukkan 12:00 – 18:00 og á sýningardögum fram að sýningu. Hægt er að kaupa staka miða og gjafakort hér á vefnum.
Kaupa gjafakortSpjallþjónusta á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opin alla virka daga frá 12-18 og um helgar frá 12:00 fram að sýningu.
Það er sáraeinfalt að kaupa miða á vefnum.
Kaupa miða
Veitingasala Þjóðleikhússins
Veitingar er hægt að panta fyrirfram og handhægt að gera það í sömu andrá og miðar eða leikhúskort eru keypt. Ef pantað er í gegnum miðasölu verður að gera það með a.m.k. 12 klukkustunda fyrirvara.
Veitingar fyrir hópa
Hópurinn þinn getur borið fram sérstakar óskir um veitingar. Sendu okkur línu á midasala@leikhusid.is og við sníðum veitingar fyrir hópinn að þínum óskum.
SJÁ MATSEÐIL
Gjafakort Þjóðleikhússins.
Þrjár gjafir í einni!
Tilhlökkun, upplifun og ógleymanlegar minningar
Þjóðleikhúsið býður upp á spennandi tilboð á gjafakortum. Nú getur þú fært þeim sem þér þykir vænt um þrjár gjafir í einni. Tilhlökkun, upplifun og ógleymanlegar minningar.
Sjá nánar
Leikhúskortið veitir þér alls konar fríðindi
Það margborgar sig að vera með kort!
- Þitt sæti á sýningarnar sem þig langar mest að sjá
- Gjafakort á sérkjörum þegar þú vilt gleðja aðra
- Afsláttur af bókum í leikhúsbókabúðinni okkar
- Sérstök tilboð send út af og til
- SMS áminningar um sýningardaga
- Ef sýningardagsetning hentar ekki þá aðstoðum við þig við að finna nýja dagsetningu.
Aðgengi og bílastæði
Bílastæði í nágrenni Þjóðleikhússins eru m.a. við vesturenda aðalbyggingarinnar, við Lindargötu og Sölvhólsgötu. Gjaldfrjálst er í þau stæði eftir kl 18. Stórt bílastæði ráðuneyta á milli Lindargötu og Sölvhólsgötu er opið almenningi á kvöldin og um helgar. Bílastæðahúsin Traðarkot við Hverfisgötu 20, gegnt Þjóðleikhúsinu, og Kolaportið undir Seðlabankanum eru opin til kl. 24:00 alla daga. Bílahús Hörpu er opið allan sólarhringinn.
Sjá nánar um aðgengi hreyfihamlaðra hér að neðan.
Aðgengi og bílastæði fyrir hreyfihamlaða
Stóra sviðið og Leikhúskjallarinn
Sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru hægra megin við aðalinngang við Hverfisgötu og þaðan er rampur niður að lyftuhúsi á austurhlið hússins sem opnar 30 mín. fyrir allar sýningar.* Lyftan tengir allar hæðir áhorfendarýmis leikhússins. Stæði fyrir hjólastóla í Stóra salnum eru hvort sínu megin við 6. bekk (1. hæð). Veitingaþjónusta er á 1. hæð og á Kristalsal á 2. hæð. Salerni er á 2. hæð (austan megin) og í Kjallara (þegar komið er niður í Austursal Kjallara, þarf að taka litla lyftu upp á pall). Stæði fyrir hjólastóla eru ókeypis. Nánari upplýsingar og bókanir hjá miðasölu í s. 551 1200 og á vefnum leikhusid.is. Ef lyftuhúsið er lokað eða einhver vandamál koma upp er hægt að gera vaktstjóra viðvart. Sími vaktstjóra: 620 1182.
Sjá nánari upplýsingar og myndir hér að neðan.
*Sérmerkt bílastæði eru einnig inn á bílastæðalóð leikhússins, en þau eru aðeins nýtt í undantekningartilfellum og við sérstakar aðstæður. Aðgengi að þeim er um Lindargötu, og að þeim er lokað hlið. Til að nýta þau þarf þess vegna að gera bakdyraverði viðvart og rá inn á bílastæði verður opnuð. Sími bakdyravarðar: 661 1184.
Aðgengi og bílastæði fyrir hreyfihamlaða
Kassinn og Litla sviðið
Unnið er að gagngerum endurbótum á aðgengi hreyfihamlaðra að Kassanum og Litla sviðinu, en nú þegar hefur verið komið upp bráðabirgðarampi sem bætir til muna aðgengi að Kassanum. Sjá frétt um fyrirhugaðar breytingar á aðgengi hér.
Kassinn
Sérmerkt bílastæði er fyrir framan aðalinngang Kassans við Lindargötu og þar er rampur inn í húsið. Salerni er á sömu hæð og svið (til hægri þegar komið er inn í húsið). Stæði fyrir hjólastóla eru í fremstu röð. Stæði fyrir hjólastóla eru ókeypis. Nánari upplýsingar og bókanir hjá miðasölu í s. 551 1200 og á vefnum leikhusid.is.
Litla sviðið
Litla sviðið er í sama húsi og Kassinn við Lindargötu. Unnið er að úrbótum á aðgengi að Litla sviðinu, en sem stendur er aðgengi fyrir hreyfihamlaða á vesturhlið hússins. Ekið er að húsinu neðan frá Sölvhólsgötu, um bílastæði ráðuneyta, að inngangi inni í horni hússins. (Athugið þó að bílastæði fatlaðra er fjær á bílastæðaplaninu). Hlið er inn á bílastæðið, en hliðið er opið um kvöld og helgar. Vinsamlega hafið samband við vaktstjóra fyrir sýningu á Litla sviðinu í síma 620 1183 til að fá aðstoð starfsfólks leikhússins.
Stæði fyrir hjólastóla er við aftasta bekk. Stæði fyrir hjólastóla eru ókeypis. Nánari upplýsingar og bókanir hjá miðasölu í s. 551 1200 og á vefnum leikhusid.is.
Vinsamlega athugið að ekki er beint aðgengi að salerni úr sal Litla sviðsins sem stendur.
Ef einhver vandamál koma upp er hægt að gera vaktstjóra fyrir Litla sviðið og Kassann viðvart, í síma 620 1183.
Sjá myndir hér að neðan.
Textun og tónmöskvar
Tónmöskvar eru í Stóra salnum fyrir heyrnarskerta. Nánari upplýsingar um tónmöskva má fá í miðasölu. Tónmöskvar eru afhendir í veitingasölunni.
Textun á ensku og íslensku á 7. sýningu verka á Stóra sviðinu.
Táknmálsaðgengi. Í samstarfi við Ástbjörgu Rut Jónsdóttur og Hraðar hendur táknmálstúlka býður leikhúsið upp á táknmálsaðgengi að ákveðnum leiksýningum, sem auglýstar eru sérstaklega.
- Salur
- Svalir
- Salur
- Svalir
- Salur
- Svalir
- Salur
- Svalir
Nær heil öld frá því að grunnur hússins var tekinn
Grunnurinn að Þjóðleikhúsbyggingunni var tekinn árið 1929, á tímum þar sem ekki var hugað að aðgengi fyrir hreyfihamlaða að opinberum byggingum með sama hætti og nú. Á síðari árum hefur verið lögð mikil áhersla á það í Þjóðleikhúsinu að bæta aðgengi fyrir fatlaða, þótt við viljum gera enn betur, og var mikilvægum áfanga náð haustið 2018 þegar nýtt lyftuhús var tekið í notkun fyrir gesti á Stóra sviðinu.
Við höldum áfram að bæta aðgengið og tökum með ánægju við ábendingum um það sem betur mætti fara í þessum efnum á leikhusid@leikhusid.is eða í miðasölu.
Leikhúsbókabúðin
Í leikhúsbókabúð Þjóðleikhússins eru á boðstólum leikhúsbækur af öllu tagi á kostakjörum, þar má finna leikrit og leikritasöfn, bækur um leikhús og leikhúsfólk, fræðirit um fagið og skáldverk sem tengjast leiksýningum Þjóðleikhússins. Þar er einnig boðið upp á eigin útgáfu leikhússins á völdum nýjum leikritum og þýðingum.
SKOÐA BÓKABÚÐ
- Almennt miðaverð á sýningar Þjóðleikhússins er 7.550 kr.
- Frumsýningar: 9.900 – 15.900 kr.
- Barnasýningar á Stóra sviðinu: 9.950 kr.
- Barnasýningar á Litla sviðinu: 4.950 kr.
- Kjallarinn: 5.950 kr.
- Forsýningar: 4.500 kr.
Heimilt er að sitja undir börnum yngri en 2ja ára á sýningum á Stóra sviðinu. Á minni sviðum er slíkt ekki heimilt.
Kortagestir fá send sms-skilaboð til áminningar um sýningardag tveimur til þremur dögum fyrir sýningu.
Leikhúskort sem keypt er að hausti gildir það leikár, en rennur út í lok leikársins, að vori.
Kortagestir fá að auki 10% afslátt af almennu miðaverði.
Vinsamlega athugið að þegar leikhúskort eru keypt að hausti eru sýningardagar áætlaðir, en þeir geta breyst þegar nær dregur. Kortagestir eru því hvattir til að fylgjast með sýningum á vef leikhússins, leikhusid.is. Þar má finna réttar dagsetningar út frá sýningarnúmeri.
Farið yfir miðakaup
Vinsamlega farið vel yfir miðakaupin þegar þau eiga sér stað, dagsetningu, sætanúmer, tímasetningu og leiksvið. Það kemur fyrir að ekki er hægt að leiðrétta miðakaup eftir á.
Greiða þarf fyrir aðgöngumiða fyrir öll börn, undanskilið stóra sviðið má sitja undir barni 2ja ára og yngri.
Breytingagjald
Breytingagjald fyrir hvern miða er 500kr. á öllum sýningum. Kortagestir hafa möguleika á að breyta kortasýningu einu sinni án endurgjalds.
Lokafrestur afpöntunar
Miði telst notaður hafi ekki verið afpantað eða breytt í síðasta lagi 48 tímum fyrir sýningu.
Endursala miða er óheimil
Ekki er heimilt að endurselja öðrum miða með fjárhagslegum hagnaði. Ef miði er seldur með fjárhagslegum hagnaði fyrir annan aðila en aðstandanda viðburðar, þá áskilur Þjóðleikhúsið sér rétt til að ógilda miðann.
Viðburður fellur niður
Ef viðburður fellur niður þá eru eigendum miða boðnir sambærilegir miðar á nýja dagsetningu eða full endurgreiðsla á miða.
Dagsetningu viðburðar breytt
Ef dagsetningu viðburðar er breytt, þá færast miðarnir sjálfkrafa á nýja dagsetningu. Ef ný dagsetning hentar ekki á kaupandi rétt á endurgreiðslu.
Endurgreiðsla vegna miðakaupa
Þegar þú hefur keypt miða/vörur hjá Þjóðleikhúsinu, í gegnum vefinn eða síma, hefur þú 14 daga frá miða eða vörukaupum til þess að falla frá kaupunum og óska eftir endurgreiðslu á miðum eða vörum. Þetta á hins vegar ekki við um beiðnir sem berast þegar minna en 14 dagar eru í viðburð. Miðar greiddir með gjafakortum fást ekki endurgreiddir.
Gjafakort
Almenn gjafakort Þjóðleikhússins renna ekki út, en ef miðaverð hefur hækkað milli leikára eða gjafakort er notað á sýningu með hækkuðu miðaverði, þarf að greiða mismun. Gjafakort er ekki hægt að fá endurgreidd. Miðar sem greiddir hafa verið með gjafakortum fást ekki endurgreiddir.
Sum gjafakort hafa hinsvegar ákveðinn gildistíma, en þá er það tekið fram á gjafakortunum.
Gjafakort gilda ekki á samstarfsverkefni eða gestaleiki í Leikhúskjallara.
Glatað gjafakort
Týnt gjafakort er tapað fé, en í einstaka tilfellum er hægt að rekja gjafakort í miðasölu.
Sendingargjald
Sendingargjald er 695 kr. fyrir heimsend gjafakort.
Fráteknir miðar
Miðar eru fráteknir í 7 daga – eftir það dettur frátektin út.
Áminning
Þjóðleikhúsið ábyrgist ekki sms og tölvupóst áminningar um sýningar. Það er á ábyrgð eiganda aðgöngumiða að halda utan um sýningardag og tíma. Við hvetjum kortahafa til að ganga úr skugga um að tenglaupplýsingar þeirra séu rétt skráðar hjá miðasölu. Ef upplýsingar eru ekki réttar getum við ekki ábyrgst að skilaboð tengd sýningum komist til miðahafa.
Leikhúskort
Í áskriftarkortum er ekki hægt að breyta um valin leikverk.
Leikhúskort sem keypt er að hausti gildir það leikár, en rennur út í lok leikársins, að vori.
Vinsamlega athugið að þegar leikhúskort eru keypt að hausti eru sýningardagar áætlaðir, en þeir geta breyst þegar nær dregur. Kortagestir eru því hvattir til að fylgjast með sýningum á vef leikhússins, leikhusid.is. Þar má finna réttar dagsetningar út frá sýningarnúmeri.