Jólin á suðupunkti

Jólin á suðupunkti

Raddbandið reynir að redda jólunum!
SVIÐ
Kjallarinn
Frumsýnt
21.11.2025
Svið
Kjallarinn
Verð:
6.900kr

Sýningin sem gerði allt vitlaust í fyrra snýr aftur í Þjóðleikhúskjallarann! 

 

Nú mæta ofurkonurnar í Raddbandinu aftur – stressaðri, þreyttari og með enn fleiri bolta á lofti.

Við fylgjumst með ungum mæðrum undirbúa hin fullkomnu jól, án þess þó að gefa nokkuð eftir í móðurhlutverkinu. Ná þær að töfra fram heilög jól í tæka tíð eða tryllast þær á sjálfsafgreiðslukassanum í Bónus?

 

Leikkonur og höfundar verksins, Auður Finnbogadóttir, Rakel Björk Björnsdóttir og Viktoría Sigurðardóttir, fara á kostum í sýningu sem byggð er á sönnum atburðum sem hefðu líklega átt að vera einkamál. 

Stórskemmtileg kvöldstund þar sem tónlist, leikhús og dans renna saman í eina allsherjar jólasprengju!

Raddbandið vakti einnig athygli fyrir fjölskyldusöngleikinn Hver vill vera prinsessa? í Tjarnarbíó sem hlaut frábæra dóma og var talinn einn af hápunktum leikársins 2025 af menningargagnrýnanda Morgunblaðsins.  

Myndbönd

Jólin á suðupunkti
Raddbandið um jólin

Leikarar

Listrænir stjórnendur

Handrit og lagatextar
Tónlist
Lýsing og hljóðmynd
Leikmynd og búningar
Listrænn ráðgjafi
Sérstakar þakkir

Guðjón Ragnarsson, Matthías Tryggvi Haraldsson, Sigurður Halldórsson, Stefanía Adolfsdóttir, Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið.

Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími