/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Rakel Björk Björnsdóttir

/

Rakel Björk Björnsdóttir hefur komið fram víða síðustu ár á sviði leiklistar og tónlistar. Hún er söngkona og tónskáld í hljómsveitinni ÞAU sem hefur haldið fjölda tónleika um land allt og gefið út tvær plötur. Hún er jafnframt söngkona og textasmiður í Raddbandinu og meðlimur í rokkbandinu different Turns þar sem hún syngur á plötunni “too asleep to hear the massive wind blow.” Auk þess á Rakel að baki yfir 250 sýningar í Borgarleikhúsinu í sýningum á borð við Matthildi, 9 líf, Leikskólasýningu ársins, Sex í sveit og Room 4.1, en Rakel fylgdi Kristján Ingimarsson Company á CPH STAGE í Danmörku vorið 2023 til að sýna Room 4.1.

Rakel er útskrifuð leikkona frá Listaháskóla Íslands og lærði meðan annars söng viðComplete Vocal Institute í Kaupmannahöfn og tónfræði hjá Guðna Franz. Nýverið fór Rakel með hlutverk Fjólu í söngleiknum Hark í Tjarnarbíó og Mæju jarðarbers í Ávaxtakörfunni ásamt því að frumsýna glænýjan barnasöngleik, Hver vill vera prinsessa? með Raddbandinu. Þar er Rakel einn af höfundum verksins, hljóðmyndahönnuður og tónskáld ásamt Stefáni Erni Gunnlaugssyni.

x°Rakel er jafnframt rödd Isabel Madrigal í Encanto, rödd Jólaþorpsins í Hafnarfirði og söng Smellum saman með Króla. Hún lék í kvikmynda- og sjónvarpsverkefnunum Þrestir, Falskur fugl, Vitjanir og Áramótaskaupinu frá árinu 2018 til ársins 2022 svo eitthvað sé nefnt. Í vetur fer Rakel með hlutverk í Jólin á suðupunkti í Þjóðleikhúskjallaranum, söngleiknum Hver vill vera prinsessa? og farsanum Heilsugæslan í Tjarnarbíó. Næst á dagskrá er frumsýning á verkinu The Host með The Nordic Beasts, undir stjórn Nooru Hannula, í Dansehallerne í Kaupmannahöfn í október.

/

Sýningar

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum. Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið virka daga frá kl. 9 og frá kl. 12 um helgar og fram að sýningu.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími