Hetjur hafsins

Hetjur hafsins

Sagan sem hefur ekki verið sögð
Svið
Stóra sviðið
Frumsýning
26. desember 2026

Magnþrungin saga um lífsbaráttu og áföll sem mótað hafa kynslóðir

Í litlu samfélagi á Vestfjörðum fléttast örlög fjölskyldna saman, mótuð af sjóslysum og missi. Þrátt fyrir brotsjói lífsins blómstra ástin og lífsgleðin – þar til örlagastund rennur upp á ný.

Rithöfundurinn Lea leiðir okkur í þorpið þar sem hún ólst upp, aftur til sjöunda áratugarins, þegar hún var lítil stelpa og vinkonurnar gátu í laumi fylgst með brasi fullorðna fólksins og séð ýmislegt sem kannski enginn átti að sjá. Samskipti fólksins eru mörkuð af hörku og blíðu, söknuði og þrá, harmi og draumum. Yfir þorpslífinu grúfir sársauki fortíðarinnar, í þögninni sem umlykur allt.

Þegar aftakaveður skellur á og enn á ný berst neyðarkall frá báti í háska bíða konur og börn í landi á milli vonar og ótta. En vinnan heldur áfram, færibandið stöðvast aldrei og spurningar vakna um hverjar séu í raun hetjur hafsins.

Nýtt og áhrifamikið leikrit eftir Ragnar Bragason

Ragnar Bragason er þekktur fyrir fjölda leiksýninga, kvikmynda og sjónvarpsþáttaraða sem hafa hlotið margvísleg verðlaun. Má þar nefna Felix & Klöru, Gullregn, Málmhaus og Vaktaseríurnar. Rætur Ragnars liggja í sjávarþorpi á Vestfjörðum og hér leitar hann til upprunans.

Umræður og textun á sýningum Þjóðleikhússins

Í kjölfar 6. sýningu verka á Stóra sviðinu verður áfram boðið upp á viðræður með leikurum og listrænum stjórnendum þar sem áhorfendum gefst færi á að fræðast og kafa dýpra.

Þriðja leikárið í röð verður boðið upp á textun á ensku og íslensku á 7. sýningu valinna verka. Þjóðleikhúsið leggur aukna áherslu á að mæta ólíkum þörfum leikhúsgesta. Textar birtast á skjám sem komið er fyrir til hliðar við sviðið eða fyrir ofan það, eftir því sem við á hverju sinni. Miðasala veitir upplýsingar um hentugustu sætin hverju sinni fyrir þá sem vilja nýta sér textun.

Nánar um textun

 

Leikarar

Höfundur

Leikskáld

Listrænir stjórnendur

Leikstjóri
Tónlist
Hljóðhönnun
Sviðshreyfingar
Dramatúrg og aðstoðarleikstjóri

Framleiðslu- og sýningarstjórn

Sýningarstjóri

Aðrir aðstandendur

Teymisstjóri sviðs- og ljósadeildar
Starfsnemi – LHÍ
Býningadeildk, yfirumsjón

Annað starfsfólk við sýninguna

Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími