Taktu lagið, Lóa
Varnarleysi, grimmd og töframáttur tónlistarinnar
Lóa er ung stúlka sem reynir að láta lítið fyrir sér fara á heimili drykkfelldrar og kjaftforrar móður sinnar. Hún leitar skjóls í herbergi sínu til að hlusta á gömlu plöturnar sem látinn faðir hennar átti og voru líf hans og yndi. Þar getur hún verið í friði, horfið inn í heim tónlistarinnar og sungið eins og söngstjörnur fortíðarinnar. Þegar nýr kærasti móður hennar kemst fyrir tilviljun að því að Lóa býr yfir ótrúlegum sönghæfileikum er hann ekki lengi að koma auga á gróðamöguleikana.
Taktu lagið, Lóa er hrífandi saga um leitina að sinni eigin rödd. Um hið brothætta andspænis hinu harða, um varnarleysi æskunnar, stormasamt samband móður og dóttur, óvænta vináttu og töframátt tónlistarinnar.
Nútímaklassík sem hefur heillað áhorfendur víða um heim með hrífandi tónlist úr öllum áttum
Eitt af meistaraverkum breska leikskáldsins Jims Cartwright, sem samdi meðal annars leikritin Stræti, Bar Par og Stone Free. Verkið var frumflutt árið 1992 og hlaut Evening Standard- og Olivierverðlaunin sem besta leikrit ársins. Taktu lagið, Lóa var áður sýnt fyrir um 30 árum í þýðingu Árna Ibsen við miklar vinsældir á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins með Ólafíu Hrönn Jónsdóttur, Kristbjörgu Kjeld og Pálma Gestssyni í aðalhlutverkum. Verkið er sett reglulega upp víða um heim og samnefnd kvikmynd frá árinu 1998 hlaut mikið lof.
Umræður og textun á sýningum Þjóðleikhússins
Í kjölfar 6. sýningu verka á Stóra sviðinu verður áfram boðið upp á viðræður með leikurum og listrænum stjórnendum þar sem áhorfendum gefst færi á að fræðast og kafa dýpra.
Þriðja leikárið í röð verður boðið upp á textun á ensku og íslensku á 7. sýningu valinna verka. Þjóðleikhúsið leggur aukna áherslu á að mæta ólíkum þörfum leikhúsgesta. Textar birtast á skjám sem komið er fyrir til hliðar við sviðið eða fyrir ofan það, eftir því sem við á hverju sinni. Miðasala veitir upplýsingar um hentugustu sætin hverju sinni fyrir þá sem vilja nýta sér textun.
Nánar um textun