Rými fyri ást
Bráðskemmtilegt nýtt verk eftir Tyrfing
Rými fyrir ást er glænýtt leikrit eftir Tyrfing Tyrfingsson en síðasta leikrit hans í Þjóðleikhúsinu, Sjö ævintýri um skömm, sló rækilega í gegn og hlaut Grímuverðlaunin fyrir besta leikrit ársins. Stefán Jónsson hlaut jafnframt Grímuna fyrir leikstjórn sína á verkinu, og hér sameina þeir Tyrfingur og Stefán krafta sína að nýju í krassandi og óvenjulegri sýningu.
Sex manneskjur leita að nánd, í óvenjulegum aðstæðum, eftir óvenjulegum leiðum. Úr verða grípandi, frumlegar og ögrandi sögur sem fléttast saman á óvæntan hátt. Hvað tekur listafólk sem rekur gistiheimili í Reykjavík til bragðs þegar heimurinn virðist vera að hrynja? Er alvöru gullfiskur í vatnsrúminu? Og hvað eru Grýla og Leppalúði að gera í leikriti eftir Tyrfing Tyrfingsson?
Svona hefur þú aldrei upplifað Stóra sviðið áður!
Hvernig getum við skapað rými fyrir ást í lífi okkar? Og getum við mögulega skapað rými fyrir ást í leikhúsinu? Stóra sviðinu verður umbylt fyrir sýninguna. Komdu og upplifðu sýningu í „musterinu“ ólíka öllu því sem þú hefur þar áður séð og heyrt!
Umræður og textun á sýningum Þjóðleikhússins
Í kjölfar 6. sýningu verka á Stóra sviðinu verður áfram boðið upp á viðræður með leikurum og listrænum stjórnendum þar sem áhorfendum gefst færi á að fræðast og kafa dýpra.
Þriðja leikárið í röð verður boðið upp á textun á ensku og íslensku á 7. sýningu valinna verka. Þjóðleikhúsið leggur aukna áherslu á að mæta ólíkum þörfum leikhúsgesta. Textar birtast á skjám sem komið er fyrir til hliðar við sviðið eða fyrir ofan það, eftir því sem við á hverju sinni. Miðasala veitir upplýsingar um hentugustu sætin hverju sinni fyrir þá sem vilja nýta sér textun.
Nánar um textun
RÝMI FYRIR ÁST / Room for Love
Award-winning playwright Tyrfingur Tyrfingsson returns with an ambitious new work exploring intimacy, longing and human connection. Six strangers search for love in unexpected ways, their stories intertwining through humour, mystery and surprising theatrical imagery. Created by one of Iceland’s most distinctive contemporary voices, this production transforms the Main Stage itself into a unique performance environment, inviting audiences to experience both theatre and love from a different perspective. Director: Stefan Jonsson.
Captioned Performance: 7th performance, May 2027.
More information about the surtitling programme: leikhusid.is/textun/