Belonging

Belonging

Being an immigrant in Iceland is funnier than you think
Svið
Kjallarinn
Verð
3.500 kr.

Reynsluheimur innflytjenda í nýju, sprenghlægilegu ljósi 

Síðustu þrjú ár hefur Þjóðleikhúsið boðið listafólki með ólíkan bakgrunn, úr ólíkum menningarkimum að láta ljós sitt skína í Kjallaranum. Listahópurinn R.E.C. Arts Reykjavík hefur stýrt viðburðunum fyrir hönd Þjóðleikhússins – en nú tekur nýr listrænn stjórnandi við með dagskrá sem kallast Belonging? 

 

Að vera innflytjandi á Íslandi er fyndnara en þú heldur 

Eftir vel heppnaða frumraun í Kjallaranum á síðasta leikári í samstarfi við R.E.C Arts Reykjavík mun viðburðaröðin Belonging? bjóða upp á blöndu af uppistandi og öðrum atriðum frá fjölbreyttum hópi flytjenda fjórum sinnum yfir veturinn. Fyrri sýningar Belonging? hafa selst upp í Tjarnarbíói og Salnum í Kópavogi og getið sér gott orð meðal áhorfenda og gagnrýnenda. Uppistandarar Belonging eiga það sameiginlegt að vera innflytjendur á Íslandi (ásamt nokkrum íslenskum leynigestum) sem flytja uppistand sitt á ensku, þar sem þeir deila með okkur sprenghlægilegum sögum úr sínum reynsluheimi og velta upp spurningum um hvort þau geti nokkurn tíma tilheyrt samfélaginu á þessari eyju.  

Listrænn stjórnandi: Daniel Byung-chan Roh 

 

Being an Immigrant in Iceland is Funnier Than You Think 

Belonging? is a new event-series that successfully debuted at Kjallarinn last spring, in collaboration with R.E.C Arts Reykjavík. After selling out shows in Tjarnarbíó and Salurinn, this critically acclaimed show has found a new home on the iconic Kjallarinn stage. Belonging? offers guests a fusion of stand-up comedy and other variety acts, including dance, music and more from a diverse group of performers. The show features immigrant comedians with a rotating cast (and some surprise Icelandic guest performers) doing stand-up in English and sharing the funny sides of being a foreigner in Iceland. All four shows over the theater season ask the same question, “can we ever really belong on this island?” 

Artistic director: Daniel Byung-chan Roh 

Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími