Dýrin í Hálsaskógi

Dýrin í Hálsaskógi

Ævintýrið bíður næstu kynslóðar
Leikstjóri
Agnes Wild
Forsöluverð
7.500 kr.
Frumsýnt
september 2027

„Látt’ekki eins og þú sért ekki þarna. Ég sé þig vel.“

Mikki refur

Fjölskyldusýningin sem allar kynslóðir elska

Dýrin í Hálsaskógi verða frumsýnd á Stóra sviði Þjóðleikhússins í september 2027 en undirbúningur er hafin og nú er unnið að ráðningum í helstu hlutverk. Þetta verður jafnframt í sjötta sinn sem verkið verður tekið til sýninga í Þjóðleikhúsinu. Ný kynslóð íslenskra barna fær nú að hrífast og skemmta sér og hræðast kannski örlítið, líkt og foreldrar sínir og ömmur og afar gerðu í fyrri uppfærslum. Mikki refur, Lilli klifurmús, bangsapabbi og Amma mús munu birtast ljóslifandi á sviðinu.

Hverjir verða í hlutverkum Mikka og Lilla?

Uppsetningar Þjóðleikhússins á Dýrunum í Hálsaskógi eiga sér merkilega sögu en verkið var fyrst sýnt árið 1962 .

Brátt verður það afhjúpað hver verður í hlutverki Mikka refs, en við þurfum að bíða aðeins lengur efir Lilla. Bessi Bjarnason er fyrir eldri kynslóðina hinn eini sanni Mikki refur, enda lék hann hlutverkið tvisvar. Fyrst árið 1962 og svo aftur árið 1977. Aðrir leikara hafa svo brillerað í þessari frábæru rullu og gert hana að sinni. Sigurður Sigurjónsson (1992), Þröstur Leó Gunnarsson (2002) og Jóhannes Haukur (2012). Nú eru því liðin 16 ár frá því að Dýrin í Hálsaskógi voru sett upp á Stóra sviðinu og sannarlega tími til kominn á nýjan Mikka ref.

 

Ekta músík og söngvamús

Lilli klifurmús er ekki síður stórbrotinn og skemmtilegur karaker og örugglega kátasta músín í skóginum. Árni Tryggvason gerði Mikka ódauðlegan og dvelur í draumhöll minninganna hjá okkur öllum.
Aðrir sem hafa spreytt sig á hlutverki Lilla eru að sjálfsögðu Örn Árnason, sem fetaði í fótspor karls föðurs síns með ógleymanlegum hætti. Atlir Rafn Sigurðarson og Ævar Þór Benediktsson voru einnig dásamlegir í hlutverki Lilla. Hver skyldi nú taka upp gítarinn næst?

 

„Afi þinn var rugludallur.“

Mikki refur

Listrænir stjórnendur

Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími