/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Elma Rún Kristinsdóttir

/

Elma Rún er danshöfundur í Línu Langsokk í Þjóðleikhúsinu.

Elma Rún hefur stundað sviðslistanám í New York og Barcelona og sótt fjölbreytt námskeið í söng, leiklist og dansi bæði á Íslandi og erlendis.

Elma er einn af stofnendum Ungleikhússins, sviðslistaskóla fyrir börn með brennandi áhuga á leik, söng og dansi. Hún hefur samið og leikstýrt fjölda söngleikja- og dansatriða fyrir börn, en bæði hún og nemendur hennar hafa á undanförnum árum unnið til fjölmargra verðlauna á Dance World Cup, heimsmeistaramóti í dansi.

Elma hefur tekið þátt í fjölda sýninga. Fyrsta atvinnusýning hennar var uppfærsla á We Will Rock You í Háskólabíói haustið 2019, og í kjölfarið lá leið hennar til Akureyrar þar sem hún dansaði í Chicago hjá Leikfélagi Akureyrar. Árið 2024 var hún bæði danshöfundur og dansari í Söngvakeppninni.

Lína Langsokkur er fyrsta sýning Elmu í Þjóðleikhúsinu.

Sýningar

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum. Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið virka daga frá kl. 9 og frá kl. 12 um helgar og fram að sýningu.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími