Ást Fedru
Áleitið verk sem er óþægilega nálægt okkur
Sarah Kane (1971-1999) er eitt áhugaverðasta breska leikskáld síðari tíma og verk hennar eru orðin sígild. Þau hafa í senn heillað fólk og gengið fram af því, eru hrá, hugvitssamleg, fyndin og full af sprengikrafti. Leikritið Ást Fedru er nú frumflutt á íslensku leiksviði.
Ást Fedru er byggt á goðsögninni um drottninguna Fedru sem verður ástfangin af stjúpsyni sínum Hippolítosi, með skelfilegum afleiðingum. Verkið talar beint inn í samtímann og veltir upp ágengum spurningum um ofbeldi, mörk, sannleika, þrá, fyrirlitningu og aðdráttarafl myrkursins.
Margrét Vilhjálmsdóttir gengur nú á ný til liðs við Þjóðleikhúsið, í hlutverki Fedru.
Leikstjórinn ungi Kolfinna Nikulásdóttir nálgast gróteskan efniviðinn á ferskan hátt og varpar óvæntu ljósi á fegurð mannskepnunnar í fjörugri og kraftmikilli uppfærslu. Kolfinna leikstýrði meðal annars óperunni KOK og er höfundur leikritsins The Last Kvöldmáltíð.
Leikarar
Myndbönd
Listrænir stjórnendur
Sýningarréttur: Nordiska Aps, www.nordiska.dk
Titill á frummáli: Phaedra’s Love
Aðrir aðstandendur
Útsetningar og upptökustjórn: Tumi Árnason, Albert Finnbogason. Hljóðfæraleikur á upptökum: Tumi Árnason, Albert Finnbogason, Símon Karl Sigurðarson Melsteð, Þórbergur Bollason.