Kjartan Darri Kristjánsson útskrifaðist af leikarabraut sviðslistadeildar Listaháskóla Íslands árið 2015. Hann leikur í Ormstungu, Nýtt eldhús eftir máli, Eltum veðrið og Sundi í Þjóðleikhúsinu í vetur. Hann leikstýrði Eltum veðrið í samstarfi við leikhópinn. Áður lék hann hér í Stormi, Frosti, Láru og Ljónsa, Eddu, Draumaþjófnum, Sem á himni og Kafbáti. Hann lék m.a. í Pílu Pínu og Helga magra hjá Leikfélagi Akureyrar og Karíusi og Baktusi og How to Become Icelandic í Hörpu. Hann hefur tekið þátt í fjölda sýninga hjá sjálfstæðum leikhópum sem leikari og vídeó-, hljóð- og ljósahönnuður, m.a. hjá LalaLab, Lab-Loka, SmartíLab, Óskabörnum Ógæfunnar, GRAL og Miðnætti. Hann hlaut Grímuverðlaunin fyrir leik í Kafbáti og var tilnefndur fyrir leik sinn í sýningunni Frost. Þá var hann einnig tilnefndur fyrir lýsingu í Þórbergi.
Starfsfólk Þjóðleikhússins