Leikari og leikstjóri
Hilmar Guðjónsson útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ 2010. Hann leikur í Eltum veðrið og Heim í Þjóðleikhúsinu í vetur. Hann lék hér í Múttu Courage, Nokkur augnablik um nótt, Hvað sem þið viljið, Ást og upplýsingum, Rómeó og Júlíu og Upphafi. Hann leikstýrði Rauðu kápunni og Verkinu í Hádegisleikhúsinu. Hann lék í fjölda sýninga í Borgarleikhúsinu, m.a. Helgi Þór rofnar, Ríkharði III, Sendingu, Mávinum, Sölku Völku, Rauðu, Músum og mönnum, Njálu, Fanný og Alexander og Ofviðrinu. Hann lék í kvikmyndunum Volaða landi, Villibráð, Bjarnfreðarson og Á annan veg og sjónvarpsþáttaröðunum Verbúðinni, Fólkinu í blokkinni, Drekasvæðinu, Stellu Blómkvist og Venjulegu fólki. Hann var valinn í hóp Shooting Stars árið 2011. Hann hlaut Grímuverðlaunin fyrir Rautt og var tilnefndur til Edduverðlaunanna fyrir Á annan veg og Volaða land.