Lára og Ljónsi snúa aftur á Stóra sviðið

Hún er komin aftur! Leiksýningin sem byggð er á geysivinsælum bókum Birgittu Haukdal um Láru og Ljónsa hefur áður yljað ungum sem eldri áhorfendum um hjartaræturnar á aðventunni. Sýningar hafa selst upp á svipstundu. Nú er miðasalan hafin og ekki seinna vænna að tryggja sér miða því þeir hafa farið á svipstundu á umliðnum árum.
Verkið gerist á aðventunni og jólasveinarnir eru farnir að tínast til byggða og gefa börnum í skóinn. En eina nóttina hverfur Ljónsi, uppáhalds mjúkdýrið hennar Láru sem, eins og flestir vita, er enginn venjulegur bangsi. Hvað getur hafa orðið af Ljónsa? Getur verið að hvarf hans tengist jólasveinunum á einhvern hátt? Aldursviðmið: 2ja til 6 ára.
Með hlutverk Láru fer Helga Salvör Jónsdóttir sem jafnframt þreytir frumraun sína í Þjóðleikhúsinu. Helga útskrifaðist úr leikaranámi við LHÍ árið 2025. Oddur Júlíusson fer með hlutverk Atla og pabba en Kristín Þórdís Guðjónsdóttir verður í hlutverki Ljónsa.
Nánar um sýningunaListrænir stjórnendur
Aðrir aðstandendur sýningarinnar