100. sýningu á Línu Langsokk fagnað í dag!

Lína Langsokkur, sterkasta stelpa í heimi, fagnaði því í dag með vinum sínum að sýningin hennar var sýnd í 100. skipti. Hún slær hvergi af og hefur nú sýnt fyrir hátt í 50 þúsund gesti. Af því tilefni gæddi Lína sér á dýrindis köku og sýndi sannkallaðan höfðingsskap með því að bjóða öllum með sér. Lína Langsokkur hefur nú gengið fyrir fullu húsi í heilt ár, en nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér miða, því sýningum fer fækkandi.
Sýningin var valin Barnasýning ársins á Grímuhátíðinni síðastliðið vor.
Þekkir þú hana Sigurlínu Rúllugardínu Nýlendínu Krúsímundu Efraímsdóttur Langsokk? Það er hún sem er með hest á veröndinni hjá sér, apa á öxlinni og bakar pönnukökur í matinn! Hún býr ein á Sjónarhóli, á fulla tösku af sjóræningjapeningum og neitar að læra fargnöldrunartöfluna! Hún á ekki í vandræðum með að leika á Glám og Glúm, dansar við frú Prússólín og tekur Adolf sterka í bóndabeygju! Já, allir elska hana Línu Langsokk! Uppátæki hennar eru engu lík!
Kaupa miða