Sala hafin á opnunarviðburð Óperunnar. Frumsýnt í Hofi á Akureyri

Hin nýstofnaða Ópera mun hefja starfsemi sína með glæsilegum viðburði sem fengið hefur nafnið Undir sömu stjörnu. Viðburðirnir, sem verða alls 5 talsins, verða í boði víða um land. Fjörið byrjar í Hofi á Akureyri þann 18. október, þar sem boðið verður upp á hátíðlega stund. Í framhaldinu verður viðburðurinn flutt víða um land, á Eskifirði, í Skálholti, Reykjanesbæ og á endanum í Þjóðleikhúsinu. Þetta er í takt við stefnu hinnar nýju Óperu en lagt er upp með að starfsemin verði um allt land – enda ópera þjóðarinnar allrar. Söngvarar Óperunnar og leikarar Þjóðleikhússins koma fram öll kvöldin en á hverjum stað munu sinfóníuhljómsveitir, kórar og gestasöngvarar úr nærumhverfi einnig láta ljós sitt skína.
Allar upplýsingar um tónleikastaði, listamenn og miðasölu á hverjum stað má fá hér:
Nánar um viðburðinn