Elín Smáradóttir lauk BA-gráðu í bókmenntafræði við Háskóla Íslands árið 2001 og meistaranámi í leikhúsfræðum við University College Dublin árið 2005. Elín hefur verið sýningarstjóri í fjölda verkefna í Þjóðleikhúsinu en þeirra á meðal eru Draumaþjófurinn, Framúrskarandi vinkona, Sem á himni, Rómeó og Júlía, Vertu úlfur, Ronja ræningjadóttir, Djöflaeyjan, Fjarskaland, Risaeðlurnar og Umhverfis jörðina á 80 dögum. Hún var áður sýningarstjóri í Íslensku óperunni, fyrst í Gamla bíói og svo í Hörpu. Verkefni hennar í óperunni eru m.a. The Rake’s Progress, Ariadne auf Naxos, La Traviata, Così fan tutte, Cavalleria Rusticana/Pagliacci, Ástardrykkurinn, Töfraflautan, Il Trovatore, Ragnheiður og Don Carlo.
Starfsfólk Þjóðleikhússins