/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Ebba Katrín Finnsdóttir

Leikari
/

Ebba Katrín Finnsdóttir útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands 2018. Í vetur leikur hún í Orð gegn orði (Prima Facie), Frosti og Jólaboðinu. Hún lék hér í Ellen B., annað titilhlutverkið í Rómeó og Júlíu og var einn af höfundum tónlistar í sýningunni, lék Uglu í Atómstöðinni-endurliti, lék í Nokkrum augnablikum um nótt, Ást og upplýsingum og Meistaranum og Margarítu. Í Borgarleikhúsinu lék hún í Dúkkuheimili 2. hluta, NÚNA 2019, Hamlet litla og Matthildi. Hún lék í Temple of Alternative Histories í Staatstheater Kassel. Hún leikur aðalhlutverk í þáttaröðinni Húsó og fór með annað aðalhlutverkið í sjónvarpsmyndinni Mannasiðum á RÚV. Ebba Katrín lék í kvikmyndinni Agnesi Joy, þáttaseríunum Venjulegu fólki 2 og 3, stuttmyndunum Samræmi og Sorg étur hjarta og hefur leikið þrisvar í Áramótaskaupi RÚV. Hún hlaut Grímuverðlaunin fyrir leik sinn í Atómstöðinni og var tilnefnd fyrir leik sinn í Orð gegn orði, Ellen B., Matthildi og fyrir tónlist og leik í Rómeó og Júlíu.

 

Sumarið 2022 fór Ebba með hlutverk Brynhildar Buðladóttur og völvu í uppsetningu Þorleifs Arnar Arnarssonar; Temple of Alternative Histories sem sýnt var í Staatstheater Kassel, Þýskalandi.

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími